Á fundi heilbrigðisráðherra með almannavörnum, landlækni, sóttvarnalækni og ríkislögreglustjóra síðdegis í dag var rætt hvort herða þyrfti gildandi samkomutakmarkanir til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Til skoðunar er að taka tveggja metra nándarmörkin upp að nýju og segir í tilkynningu almannavarna að þau verði þá ekki lengur „tilmæli“ heldur „regla“.
Samkvæmt tilkynningu almannavarna var líka rætt á fundinum var hvort breyta þyrfti áherslum eða herða aðgerðir á landamærum. Einnig var rætt um að hækka viðbúnaðarstig almannavarna, en engar ákvarðanir voru teknar á fundinum, „enda beðið gagna og upplýsinga úr greiningu sýna.“
Eins og fram hefur komið í dag eru tuttugu og fjórir einstaklingar í einangrun með staðfest smit, en þar af eru 14 innanlandssmit. 173 eru í sóttkví. Ekki hefur tekist að rekja tvö innanlandssmit en unnið er að smitrakningu og raðgreiningu sýna.
Samráðshópur mun koma aftur saman til fundar á morgun, en í tilkynningu almannavarna segir að ákvörðunin muni byggja á þeim niðurstöðum sem nú er beðið eftir.
Hafa áhyggjur af verslunarmannahelginni
„Almannavarnir og sóttvarnayfirvöld hafa áhyggjur af komandi verslunarmannahelgi þar sem viðbúið er að margir verði á faraldsfæti og hætta á að smit geti borist enn frekar út í samfélaginu. Áríðandi er að fólk taki upp og haldi á lofti einstaklingsbundnum sóttvörnum, virði tilmæli um nándarmörk og verndi viðkvæma hópa. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til þess að skerpa á sóttvörnum og leiðbeiningum. Þá er áríðandi að fólk virði einangrun, sóttkví og taki heimkomusmitgát af fyllstu alvöru,“ segir í tilkynningu almannavarna.
Þar er einnig farið yfir helstu einkenni COVID-19 sýkingar og minnt á að þau eru ekki alltaf þau sömu. Þau minna þó oft á venjulega flensu.
„Einkenni geta verið aðeins eitt af eftirtöldu, það er hiti, hálssærindi, hósti, slappleiki, bein- og vöðvaverkir og skyndilega breyting eða tap á bragð- og lyktarskyni. Hafi fólk grun um smit á að halda sig heima, hafa samband við sína heilsugæslu í gegnum síma, við netspjall Heilsuveru.is eða við Læknavaktina í síma 1700. Heilbrigðisstarfsfólk mun þar ráðleggja um næstu skref og hvar sýnataka muni fara fram ef þarf,“ segir í tilkynningu almannavarna.