Fjögur ný smit staðfest

Staðfest virk smit af kórónuveirunni eru nú orðin 28 hér á landi. 187 eru komnir í sóttkví. Öll nýju tilfellin eru innanlandssmit.

kórónuveiran
Auglýsing
Fjórir til við­bótar greindust með COVID-19 hér á landi í gær og er fjöldi virkra smita því orð­inn 28. Allt er fólkið í ein­angr­un. 187 eru komnir í sótt­kví. Ekki hafa verið fleiri virk smit á land­inu frá því í byrjun maí. 

Þessir fjórir ein­stak­lingar sem greindust í gær smit­uð­ust allir hér inn­an­lands og eru því inn­an­lands­smitin orðin 18.



Í gær voru stað­fest smit 24 og af þeim höfðu fjórt­án ein­stak­lingar smit­ast hér á landi. Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, sagði við RÚV í gær að hann væri ugg­andi út af stöð­unni og ótt­að­ist að veiran væri aftur að kom­ast á flug. Benti hann á að þrír af þeim ­sem væru með COVID-19 væru sýktir af veiru af sama stofni en virt­ust ekki tengj­ast. Því væri mögu­legt að smit í sam­fé­lag­inu væri útbreidd­ara en menn héldu.

Auglýsing

Íslensk erfða­grein­ing hefur aftur tekið að sér það hlut­verk að skima fyrir veirunni í sam­fé­lag­inu. Þá hefur hún einnig það verk­efni að rað­greina veiruna í þeim sýnum sem hún finnst til að kom­ast að upp­runa þeirra.

Í gær voru 173 í sótt­kví. Í dag er fjöld­inn orð­inn 187.

Alma Möller land­læknir sagði í gær að hinir sýktu sýndu ekki al­var­leg ein­kenni en Kári benti á að í ein­hverjum til­fellum hafi þeir reyn­st ­með mikið magn af veirunni í lík­am­anum og því verið mjög smit­andi.

Í gær voru tekin 118 sýni á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans. Frá því fyrsta smitið greind­ist hér á landi 28. febr­úar hefur 1.861 greinst með COVID-19 hér á landi.

Í dag kemur í ljós, eftir fund heil­brigð­is­ráð­herra með land­lækni og full­trúum almanna­varna og sótt­varna­lækn­is, hvort að við­bún­að­ar­stig verði aftur hækkað á neyð­ar­stig og hvort gripið verði aftur til hertra aðgerða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent