Jóhann Möller ráðinn framkvæmdastjóri Stefnis

Jóhann Möller hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sjóðstýringafyrirtækisins Stefnis, sem í eigu Arion banka. Fyrri framkvæmdastjóri hætti störfum í júní eftir einungis rúmt ár í starfi.

Jóhann Möller er nýr framkvæmdastjóri Stefnis.
Jóhann Möller er nýr framkvæmdastjóri Stefnis.
Auglýsing

Jóhann Möller hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Stefnis hf. frá og með 1. ágúst. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Stefni, sem er stærsta sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki lands­ins og í eigu Arion banka.

Jóhann hefur 20 ára reynslu af störfum á fjár­mála­mark­aði og hefur verið starf­andi hjá Stefni allt frá árinu 2006 við stýr­ingu á inn­lendum hluta­bréfa­sjóð­um, auk þess sem hann hefur veitt hluta­bréfateymi félags­ins for­stöðu síð­ast­liðin þrjú ár.

For­veri hans í starfi, Jök­ull H. Úlfs­son, óskaði eftir því að láta af störfum um miðjan júní, en þá hafði hann verið rúmt ár í starfi. Krist­björg M. Krist­ins­dótt­ir, stað­geng­ill fram­kvæmda­stjóra, hefur sinnt starf­inu síð­an, en Jóhann mun sem áður segir taka við núna um mán­aða­mót­in.

„Það er mik­ill heiður að fá tæki­færi til­ að leiða þennan frá­bæra hóp starfs­manna Stefn­is. Hjá Stefni starfar öfl­ugur hópur sér­fræð­inga sem býr yfir viða­mik­illi þekk­ingu og reynslu á fjár­mála­mörk­uðum hér heima og erlend­is. Mark­mið okkar er að vera áfram í far­ar­broddi í stýr­ingu og upp­bygg­ingu nýrra sjóða og sér­hæfðra afurða, með vönduð vinnu­brögð og hags­muni við­skipta­vina okkar að leið­ar­ljósi,“ er haft eftir Jóhanni í til­kynn­ingu Stefn­is.

Auglýsing

Stefnir var með um 250 millj­­arða króna í virkri sjóða­­stýr­ingu í lok árs 2019, en fyr­ir­tækið var stofnað árið 1996. Þar starfa um 20 sér­­fræð­ingar í fjórum teymum við stýr­ingu á fjöl­breyttu úrvali verð­bréfa-, fjár­­­fest­ing­­ar- og fag­fjár­­­festa­­sjóða. Einnig stýrir félagið eignum nokk­­urra sam­lags­hluta­­fé­laga sem stofnuð hafa verið í kringum fram­taks­fjár­­­fest­ing­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent