Númer eitt, tvö og þrjú að ná tökum á aðstæðum

Hertar sóttvarnaraðgerðir taka gildi á hádegi á morgun og gilda til tveggja vikna. Forsætisráðherra segir það gert til að hægt sé að fá yfirsýn yfir stöðu mála og ná tökum á þeim aðstæðum sem upp eru komnar.

Frá fundi stjórnvalda í Safnahúsinu við Hverfisgötu í apríl.
Frá fundi stjórnvalda í Safnahúsinu við Hverfisgötu í apríl.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir þær aðgerðir sem nú er gripið til ekki koma á óvart. „Þessar til­lögur eru algjör­lega eins og búast má við miðað við þá stöðu sem er uppi. Þar sem við erum að sjá þessa miklu og hröðu fjölgun smita hér inn­an­lands þá hefur það algjör­lega legið ljóst fyrir af okkar hálfu að þá yrði gripið inn í með afger­andi hætt­i,“ sagði Katrín í við­tali við RÚV eftir að blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu lauk fyrr í dag.



Á blaða­manna­fund­inum voru hertar sótt­varn­ar­ráð­staf­anir kynnt­ar. Frá og með morg­un­deg­inum verður sam­komu­bann miðað við 100 manns. Tveggja metra reglan verður nú skylda þar sem fólk kemur sam­an. Grím­notkun verður skylda á ákveðnum stöðum þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra regl­una, til dæmis í almenn­ings­sam­göng­um, inn­an­lands­flugi og far­þega­ferj­um.

Auglýsing


Hún sagði að skoða þyrfti hvort að grípa þyrfti til rek­ari aðgerða. „Hér er verið að leggja til aðgerðir í tvær vikur meðan við erum í raun og veru að fá yfir­sýn yfir þessa stöðu og ná tökum á aðstæðum sem ég held að sé númer eitt tvö og þrjú nún­a,“ sagði Katrín í við­tal­inu.



Þá sagði hún það ótíma­bært að ræða um frek­ari upp­sagnir í atvinnu­líf­inu. Nú sé ekki verið að ráð­ast í umfangs­miklar lok­anir eins og í fyrri aðstæð­um. Heldur sé verið að horfa til þess að lögum okkur að aðstæðum og hugum að sótt­varn­ar­ráð­stöf­un­um. 



Spurð að því hvort of hratt hafi verið farið í aflétt­ingar tak­mark­ana og hvar mis­tökin í ferl­inu lægi sagði Katrín við hafa farið var­færn­is­lega í öllum til­slök­unum . „Ég held að hér sé ekki hægt að tala um mis­tök. Heldur erum við stödd í heims­far­aldri sem við vitum ekki hvernig hegðar sér fyrir fram. Það eru allar þjóðir að ganga í gegnum þetta sama lær­dóms­ferli og við sögðum það í upp­hafi þegar við léttum tak­mörk­unum að við værum mjög með­vituð um það að það gæti þurft að grípa inn í með afger­andi hætti ef þetta bloss­aði upp aft­ur,“ sagði Katrín í við­tal­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent