Frá hádegi í dag, föstudag, taka hertar aðgerðir vegna hraðrar útbreiðslu COVID-19 hér á landi síðustu daga gildi. Það verður aftur regla að halda 2 metra fjarlægð en við aðstæður þar sem ekki er hægt að hafa tveggja metra fjarlægð á að nota hlífðargrímu sem hylur munn og nef.
Í leiðbeiningunum, sem birtar voru í gærkvöldi, nokkrum klukkutímum eftir að hertar aðgerðir voru kynntar, er ítrekað að þegar hægt sé að tryggja 2 metra á milli einstaklinga þurfi ekki að nota hlífðargrímu „og ekki er mælt með almennri notkun grímu á almannafæri“.
Þá er eftirfarandi tekið skýrt fram að hlífðargríma kemur aldrei í stað almennra sýkingavarna sem alltaf skal viðhafa: handhreinsun, almennt hreinlæti og þrif á snertiflötum. Þá kemur hlífðargríma ekki í stað 2 metra reglunnar t.d. í verslunum og skemmtistöðum
Hlífðargrímur á að nota hér á landi við eftirfarandi aðstæður:
- Í öllu áætlunarflugi, innanlands og milli landa.
- Í farþegaferjum ef ekki er hægt að hafa 2 metra fjarlægð milli einstaklinga. Athugið að ekki er þörf fyrir grímu ef farþegar sitja í eigin farartæki, lokuðu, í ferjunni.
- Í öðrum almenningssamgöngum, ef ekki eru gerðar ráðstafanir til að 2 metra fjarlægð sé milli einstaklinga. Sérstaklega er mikilvægt að nota grímu í rútum frá flugvelli, eftir sýnatöku á landamærum og á lengri leiðum með hópferðabílum, en í innanbæjarsamgöngum þar sem ferð er gjarnan 15-30 mínútur. Fyrst og fremst, ættu einstaklingar í áhættuhópum að nota grímu.
- Við þjónustu við einstaklinga sem krefst návígis, s.s. snyrtingu, nudd, sjúkraþjálfun, við tannlækningar, við augnlækningar og við heimahjúkrun.
- Í öllum öðrum aðstæðum gilda reglur um fjöldatakmarkanir og 2 metra fjarlægð milli einstaklinga og geta hlífðargrímur ekki komið í stað þess.
Ekki er gerð krafa um að börn fædd 2005 og síðar beri grímur.
Eiga að grípa dropa
Hlutverk hlífðargrímu er að grípa dropa sem koma úr öndunarvegi þess sem ber hana svo þeir dreifist ekki um umhverfið. „Þetta gerir að verkum að notuð hlífðargríma er mjög menguð af örverum sem eru alla jafna í munnvatni,“ segir í leiðbeiningunum. Því þarf að gæta ítrasta hreinlætis við notkun grímurnar, snerta þær sem minnst og skipta um grímu þegar hún er orðin rök eða skemmd á einhvern hátt. Alltaf þarf að þvo eða spritta hendur eftir snertingu við notaðar hlífðargrímur.
Æskilegast er að nota einnota hlífðargrímur sem hent er eftir notkun í almennt sorp og þvo hendur eða spritta eftir snertingu við grímuna. Æskilegt er að miða að hámarki við fjórar klukkustundir uppsafnaða eða samfellda notkun og henda þá grímunni.
Margnota grímur úr taui má einnig nota en nauðsynlegt er að þær séu úr efni sem má þvo og þarf að lágmarki að þvo þær daglega. Sama gildir um margnota grímur og einnota grímur, þær mengast að utan og því á að snerta þær sem allra minnst og þvo eða spritta hendur á eftir. Nánari leiðbeiningar um slíkar grímur eru væntanlegar.
Að lokum er áréttað:
- Ekki er mælt með almennri grímunotkun á almannafæri
- Rök og skítug gríma gerir ekkert gagn og getur aukið sýkingarhættu
- Einnota gríma, sem notuð er oftar en einu sinni, gerir ekkert gagn og getur aukið sýkingarhættu
- Hlífðargríma, sem hylur ekki bæði nef og munn, gerir ekkert gagn
- Hlífðargríma, sem er höfð á enni eða undir höku, gerir ekkert gagn