Umhverfisstofnun hefur farið yfir þá gagnrýni sem fram hefur komið á samfélagsmiðlum á þær upplýsingar um baráttukonuna Sigríði Tómasdóttur í Brattholti sem sjá má á upplýsingaskilti við fossinn. Skýring hefur nú fengist á málinu.
Rétt er að í texta á skilti við fossinn nú er ekki getið afreka Sigríðar og baráttu hennar fyrir verndun Gullfoss við upphaf síðustu aldar. Það skilti er þó að sögn Umhverfisstofnunar aðeins eitt af mörgum sem alla jafna er á hinu friðlýsta svæði sem stofnunin hefur umsjón með.
„Vegna frétta og umræðu um skilti við Gullfoss og meintan skort á mikilvægum upplýsingum um umhverfissinnann Sigríði frá Brattholti, vill Umhverfisstofnun, umsjónaraðili hins friðlýsta svæðis, taka fram að baráttu Sigríðar gegn virkjun fossins er að jafnaði getið í ýmsum upplýsingum sem lesa má á skiltum við fossinn,“ segir í tilkynningu Umhverfisstofnunar. „Vegna framkvæmda á efri stíg og við útsýnispall við Gullfoss hafa aftur á móti nokkur skilti verið tekin niður tímabundið í sumar. Það kann að skýra þá upplifun sumra gesta að samhengi upplýsinga sé ábótavant og að Umhverfisstofnun sýni ekki ævistarfi Sigríðar þá virðingu sem hún á skilið.“
Í texta á skilti í gestastofu Gullfoss segir m.a.: „Barátta Sigríðar fyrir fossinum var ósérhlífin og einstök. Hún lagði oft nótt við dag til að fylgja máli sínu eftir, fór í langferðir yfir fjallvegi, óð stórár á hvaða tíma árs sem var og átti marga fundi með embættismönnum í Reykjavík. Vegna þessarar baráttu hefur Sigríður oft verið nefnd fyrsti umhverfissinni Íslands.”
Umhverfisstofnun bendir á að öll skilti við efri stíg hafi verið fjarlægð tímabundið vegna framkvæmdanna. Áætlað er að framkvæmdum við fossinn ljúki í september. Ættu upplýsingamál að komast í gott horf upp úr því.
„Umhverfisstofnun þakkar vinsamlegar ábendingar um texta á einu skiltanna sem hverfist nokkuð ítarlega um útlit Sigríðar. Mun sá texti sæta endurskoðun.“