Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sent bréf til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra þar sem þess er krafist að úrbætur verði gerðar á því hvernig mikilvægum upplýsingum varðandi kórónuveirufaraldurinn miðlað til þeirra íbúa á Íslandi sem hafa annað móðurmál en íslensku.
„Þegar þetta bréf er ritað, að morgni 5. ágúst, er ekki enn búið að uppfæra upplýsingar á pólsku á vefnum www.covid.is. Þar er ennþá fjallað um tímabilið frá 15. júní til 31. ágúst; samkomubann er fyrir fleiri en 500 manneskjur, 2 metra reglan er valfrjáls og engar upplýsingar er að finna um notkun á andlitsgrímum,“ segir í bréfi Sólveigar Önnu, sem félags- og barnamálaráðherra, heilbrigðisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auk landlæknis fengu einnig afrit af.
Sólveig Anna segir að stjórnvöld eigi að tryggja á að „bestu mögulegu upplýsingar um almennar smitvarnir og viðmið almannavarna hverju sinni berist hratt og örugglega til allra þátttakenda í samfélaginu“ en að sá misbrestur hafi verið á vinnubrögðum upplýsingateymis stjórnvalda að „oft og einatt hefur fólk með annað móðurmál en íslensku þurft að bíða dögum saman eftir þýðingum á nýjustu upplýsingum á vefnum.“
„Aðflutt fólk á Íslandi telur hátt í 50.000 manneskjur. Þær eru virkir þátttakendur í íslensku samfélagi og þar af leiðandi ómissandi hlekkur í virkum smitvörnum almennings. Þessu hlutverki sínu getur fólk þó ekki gegnt nema með greiðum upplýsingum um smitvarnir. Einnig vil ég benda á að hátt í 15.000 ferðamenn með erlent móðurmál dveljast hér á landi hverju sinni í sumar. Margir þeirra dvelja á stöðum og njóta þjónustu aðflutts vinnuafls á ferðalögum sínum um landið. Okkur öllum ætti því að vera ljóst hversu mikilvægt er að tryggja greiðan aðgang að upplýsingum á erlendum tungumálum,“ segir í bréfi Sólveigar Önnu.
Ekki allir almannavarnir ef ekki allir fá skilaboðin
Þess er krafist fyrir hönd Eflingar að stjórnvöld „geri gangskör að því að tryggja skilvirkari vinnubrögð við birtingu mikilvægra upplýsinga á erlendum tungumálum“ í tengslum við faraldurinn á vef sínum og í gegnum aðra miðla.
Einnig er bent á það í bréfinu að góð leið til að ná betri árangri væri að senda mikilvægar smitvarnarupplýsingar í tölvupósti til þeirra sem eru í tengslum við aðflutt fólk, m.a. almenn félagasamtök og verkalýðsfélög.
„Við erum ekki öll almannavarnir ef upplýsingarnar ná ekki til okkar allra,“ segir Sólveig Anna.