Tvö ný innanlandssmit og tveir á sjúkrahúsi með COVID-19

Tvö ný innanlandssmit af kórónuveirunni greindust hér á landi í gær. Eitt virkt smit greindist við landamærin. 114 manns eru með COVID-19 og í einangrun og tveir liggja á sjúkrahúsi.

Sýnataka
Auglýsing

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­ustu daga og er í eina­grun er 114 sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum COVID.­is. 

Tvö ný til­felli greindust inn­an­lands í gær, bæði hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Eitt virkt smit greind­ist við landa­mær­in. Í gær voru 962 í sótt­kví en í dag er fjöld­inn kom­inn niður í 938. 

Tveir sjúk­lingar eru á sjúkra­húsi með COVID-19. Annar þeirra, maður á fer­tugs­aldri, er á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans og í önd­un­ar­vél. 

179 sýni voru tekin og greind hjá Land­spít­al­anum í gær og 59 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu sem hóf m.a. skimun í Vest­manna­eyjum í gær þar sem hópsmit kom upp um versl­un­ar­manna­helg­ina. Þetta eru nokkuð færri sýni en tekin voru inn­an­lands dag­ana á und­an.

Auglýsing

Af þeim sem eru með virkt smit eru flestir í ald­urs­hópnum 18-29 ára eða 45. Níu á aldr­inum 13-17 ára eru með COVID-19 og eitt barn yngra en tólf ára. 

Frá því að fyrsta smitið var greint hér á landi í lok febr­úar hafa 1.962 greinst með COVID-19. Tíu hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í síð­ustu viku kom fram að sótt­varna­læknir væri að vinna að nýjum til­lögum um aðgerðir hér á landi sem hann svo skilar til heil­brigð­is­ráð­herra sem tekur end­an­lega ákvörðun um þær.

Á fund­inum í gær kom fram að veru­lega vant­aði upp á að sýk­inga­varnir væru til staðar á skemmti­stöðum í Reykja­vík. Lög­reglan mun héðan í frá beita sektum og jafn­vel lok­unum komi sú staða upp aft­ur. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent