Víðir: Getum ekki sest í hægindastólinn og slakað á

Þrátt fyrir að útlit sé fyrir að árangur sé að nást af hertum sóttvarnaaðgerðum innanlands og tilslakanir séu framundan er ekki kominn til að hætta að huga að smitvörnum. Sá tími kemur ekki á meðan að veiran er til staðar, segir Víðir Reynisson.

Víðir Reynisson á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Víðir Reynisson á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Auglýsing

„Þó svo að við séum að boða ein­hverjar til­slak­anir hérna þá er það ekki þannig að við getum sest aftur í hæg­inda­stól­inn og slakað á. Það gilda og munu gilda áfram svo lengi sem þessi veira er í sam­fé­lag­inu, ein­stak­lings­bundnar smit­varn­ir, sem ganga út á að þvo á sér hend­urn­ar, spritta á sér hend­urn­ar, þvo sam­eig­in­lega snertifleti, að vera í ekki of stórum hópum og halda þess­ari fjar­lægð sem er í gildi – tveir metr­arnir eru grunn­reglan í því,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn við lok 101. upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í dag.





Hann sagði, rétt eins og Þórólfur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir, að nú virt­ist sem við værum að ná stjórn á þess­ari bylgju far­ald­urs­ins. Vænt­an­lega myndu fleiri grein­ast næstu daga, en við ættum ekki að láta það slá okkur út af lag­inu, heldur halda áfram að berj­ast gegn veirunni með þeim ráðum sem við höfum til­tæk.



Víðir þakk­aði öllum þeim sem hefðu tekið þátt í því að vinna góða vinnu til þess að halda sam­fé­lag­inu gang­andi með þeim sótt­varna­ráð­stöf­unum sem hafa verið í gildi frá því fyrir versl­un­ar­manna­helgi.



Rætt um ungt fólk eins og „geim­ver­ur“



Staða ungs fólks í þessum far­aldri var sér­stak­lega tekin til umræðu á upp­lýs­inga­fund­inum í dag, en 37 pró­sent allra þeirra sem greinst hafa með veiruna í þeim hóp­sýk­ingum sem komið hafa upp und­an­farnar vikur hafa verið á aldr­inum 18-29 ára.

Auglýsing



Eitt­hvað hefur borið á gagn­rýni í garð atferlis ungs fólks í þessum far­aldri – og það verið haft á orði að leið­bein­ingar almanna­varna og heil­brigð­is­yf­ir­valda séu ekki að ná nægi­lega vel til yngstu hópanna. Una Hild­ar­dótt­ir, for­seti Lands­sam­bands ung­menna­fé­laga, var á fund­inum og sagði að mik­il­vægt væri fyrir yfir­völd og fjöl­miðla lands­ins að tala við ungt fólk, ekki bara til þeirra.

Una Hildardóttir á fundinum í dag. Mynd: Lögreglan.



„Við höfum fundið fyrir þeirri lensku núna að ungt fólk sé, líkt og oft áður, tekið út fyrir sviga og það sé rætt um það eins og ein­hvern hóp sem sé ekki hluti af sam­tal­inu, eins og ein­hverjar geim­ver­ur,“ sagði Una og bætti við að ein­falt væri að ná til ungs fólks og tala við það ef vilji væri fyrir hendi.



Hún sagði ungt fólk hafa tekið mikla ábyrgð í þessum far­aldri, væri margt að vinna í fram­línu­störfum með við­kvæm­ustu hóp­unum í sam­fé­lag­inu og væri að standa sig vel.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent