Fjögur ný innanlandssmit

Fjögur ný innanlandssmit af kórónuveirunni greindist hér á landi í gær. Ekekrt virkt smit greindist við landamærin. 115 manns eru með COVID-19 og í einangrun. Einn liggur á gjörgæsludeild.

Landspítalinn
Auglýsing

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­ustu daga og er í eina­grun er 115 sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum COVID.­is. Fjögur ný til­felli greindust inn­an­lands í gær, öll hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­an. Ekk­ert virkt smit greind­ist við landa­mærin en í gær voru þau fimm sem er mesti fjöldi sem greinst hefur þar frá því að skimun ferða­manna hófst um miðjan jún­í. 

Í gær voru 839 í sótt­kví en í dag er fjöld­inn kom­inn niður í 766. 

Auglýsing

Einn liggur enn á sjúkra­húsi með COVID-19 og er hann á gjör­gæslu­deild. Tveir sjúk­lingar voru inniliggj­andi í gær en annar þeirra hefur verið útskrif­að­ur.

667 sýni voru tekin og greind hjá Land­spít­al­anum í gær og 523 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Við landa­mærin voru tekin 2.115 sýni.

 

Allir þeir sem grein­ast með COVID-19 eru í umsjá COVID-­göngu­deildar Land­spít­ala. Starfs­menn hennar ann­ast eft­ir­lit með sjúk­ling­unum og eftir atvikum með­ferð. „Núna eru rúm­lega 100 full­orðnir í eft­ir­liti hjá okkur og um ell­efu börn sem starfs­fólk Barna­spít­ala Hrings­ins sinn­ir,“ segir Run­ólfur Páls­son, for­stöðu­maður lyf­lækn­inga- og end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu Land­spít­ala, í ítar­legu við­tali við Kjarn­ann sem birt var í morg­un.

Um nokk­urt skeið hafa dag­lega bæst við sjúk­lingar en síð­ustu daga hafa nokkrir út­skrif­ast sem hafa náð bata sam­kvæmt ákveðnum skil­merkj­u­m. „Þess vegna hefur sjúk­lingum í umsjá göngu­deild­ar­innar ekki fjölgað eins mikið og ann­ars hefði ver­ið,“ bendir Run­ólfur á. Til þess að sjúk­lingur sé útskrif­aður úr eft­ir­liti þarf hann að hafa verið ein­kenna­laus í sjö daga og að minnsta kosti fjórtán dagar þurfa að hafa liðið frá grein­ingu. Fylgst er vel með þróun ein­kenna, jafn­vel  með dag­legum sím­töl­um, ekki síst vegna þess að dæmi eru um að þau geti versnað skyndi­lega og að hratt geti þurft að bregð­ast við.

Run­ólfur segir að heilt yfir hafi starf­semi göngu­deild­ar­innar gengið vel og verk­efnin verið við­ráð­an­leg það sem af er þess­ari bylgju far­ald­urs­ins. „Það skýrist mest af því að stærsti hluti þeirra sem sýkst hafa að und­an­förnu er ungt fólk og að lang­flestir hafa haft væg ein­kenn­i.“

Frá því að fyrsta smitið var greint hér á landi í lok febr­úar hafa 1.972 greinst með COVID-19. Tíu hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent