Alls greindust sjö innanlandssmit af kórónuveirunni hér á landi í gær samkvæmt nýjustu upplýsingum á COVID.is Fjöldi virkra smita fór niður úr 120 á miðvikudaginn í 112 á fimmtudaginn, en í gær hefur hann aukist aftur upp í 119.
Fjórir þeirra sem greindust jákvæð voru í sóttkví við greiningu, eða 57 prósent, og er það nokkuð yfir meðaltali síðustu daga. Öll smitin greindust hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, en deildin tók 501 sýni.
Auglýsing
Á landamærunum greindust 4 COVID-sýni jákvæð af 2805, en enn er beðið eftir niðurstöðum úr mótefnamælingu hjá þeim.
Fjöldi einstaklinga í sóttkví hefur lækkað úr 646 niður í 605 milli daga.