Landsmenn settu Íslandsmet í eyðslu í júlí – Kortavelta aldrei verið hærri

Íslendingar settu met í eyðslu í síðasta mánuði, þegar fjölmargir þeirra ferðuðust innanlands og eyddu fjármunum þar sem alla jafna hefur verið eytt erlendis. Verslun í mánuðinum var á pari við það sem gerist í desember.

Íslendingar hafa verið að ferðast innanlands í sumar. Og eyða umtalsverðum fjármunum.
Íslendingar hafa verið að ferðast innanlands í sumar. Og eyða umtalsverðum fjármunum.
Auglýsing

Íslend­ingar greiddu 81,2 millj­örðum króna með greiðslu­kortum inn­an­lands í júlí­mán­uði. Þar af nam verslun 44,7 millj­örðum króna. Korta­velta lands­manna hefur aldrei verið jafn há og hún var í síð­asta mán­uði, þegar fjöl­margir lands­menn eyddu fjár­munum sem þeir að öllu jafna eyða erlend­is, í inn­lenda neyslu. 

Alls eyddu Íslend­ingar um 200 millj­örðum króna erlendis í fyrra. Heild­ar­vöxtur inn­lenda korta hér­lendis í júlí í ár 18,5 pró­sent meiri en í júlí­mán­uði 2019. Það þýðir neyslan hafi auk­ist um 12,7 millj­arða króna í júlí.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar um korta­veltu Íslend­inga. 

Í til­kynn­ingu frá setr­inu segir að Íslend­ingar hafi greitt ríf­lega tvö­falt meira til gisti­staða í júlí síð­ast­liðnum sam­an­borið við júlí í fyrra, alls 2,2 millj­arða í júlí í ár sam­an­borið við 930 millj­ónir í fyrra. „Í júní­mán­uði var inn­lend korta­velta gisti­staða einnig há eða um 1,3 millj­arð­ar, 75 pró­sent meira en í júní í fyrra. Inn­lend korta­velta veit­inga­staða jókst hóf­legar á milli ára, um 29 pró­sent og nam 6,8 millj­örðum í júlí sem leið. Þá jókst elds­neyt­is­sala til Íslend­inga um tæp 7 pró­sent sam­an­borið við júlí 2019.“

Auglýsing
Verslun jókst um 27,4 pró­sent milli ára og var, líkt og áður sagði 44,7 millj­arðar króna. Það er afar óvenju­legt að hún sé svo mikil í júlí og til sam­an­burðar má nefna að verslun í mán­uð­inum í ár var nán­ast jafn mikil og hún var í jóla­mán­uð­inum des­em­ber í fyrra, sem alla jafna er stærsti versl­un­ar­mán­uður árs­ins, en þá versl­uðu lands­menn fyrir 45 millj­arða króna inn­an­lands. 

Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar segir að inn­lend korta­velta hafi auk­ist í öllu und­ir­flokkum versl­un­ar, en mest í net­verslun þar sem hún jókst um 83 pró­sent milli ára. Þegar sam­komu­tak­mark­anir voru sem mest íþyngj­andi í apr­íl, var hlut­fall net­versl­unar af heild­ar­verslun um níu pró­sent en lækk­aði næstu mán­uði og var 3,9 pró­sent í júlí. Það er þó hærra hlut­fall en net­verslun hafði í heild­ar­verslun áður en að heims­far­ald­ur­inn skall á.

Stór­mark­aðir og dag­vöru­versl­anir eru eftir sem áður stærsti und­ir­flokkur versl­unar og nam inn­lend korta­velta flokks­ins alls 18,4 millj­örðum króna í júlí.

Efna­hags­legir hags­munir af lokun metnir miklir

Í lok síð­ustu viku birtu stjórn­völd minn­is­blaðið um að efna­hags­legu áhrifin af því að herða tak­mark­anir á landa­mærum lands­ins væru lík­lega hag­kvæm­ari en af því að hafa þau meira opin, líkt og þau höfðu verið frá miðjum júní. Í minn­is­blað­inu var lagt mat á efna­hags­leg áhrif þess að opna landið og borið það saman við ábatann af því að hleypa ferða­mönnum inn. 

Í minn­is­blað­inu sagði að „efna­hags­legir hags­munir af því að kom­ast hjá hörðum sótt­varna­að­gerðum geta hlaupið á hund­ruðum millj­arða króna“.

Þar sagði að frá því að tak­mörk­unum var lyft á landa­mærum Íslands um miðjan júní hefðu um 70 þús­und ferða­menn komið til lands­ins auk um 45 þús­und íslenskra rík­is­borg­ara. Fram­lag hvers ferða­manns á hag­kerfið er metið á 100 til 120 þús­und krónur og því er áætlað að þeir ferða­menn sem hafa heim­sótt Ísland síð­ustu tvo mán­uði hafi lagt um átta millj­arða króna til efna­hags­lífs­ins á þeim tíma. Til sam­an­burðar gæti útbreiðsla far­ald­urs­ins dregið úr neyslu inn­an­lands um tíu millj­arða króna, líkt og gerð­ist þegar sett var á hart sam­komu­bann hér­lendis í vor. 

Verðum af 20 til 24 millj­örðum króna

Í sama minn­is­blaði var reynt að spá fyrir um hversu margir ferða­menn myndu koma til lands­ins ef ekki hefði verið tekin ákvörðun um að herða tak­mark­anir á landa­mærum, líkt og gert var í síð­ustu viku. 

Þar segir að ógern­ingur sé að spá fyrir um slíkar komur með góðu mót­i þegar aðstæður geta breyst veru­lega milli daga. „Ef hins vegar gert er ráð fyrir óbreyttum aðstæðum út árið má nota komur ferða­manna í júlí ásamt árs­tíða­sveiflu í fjölda ferða­manna árið 2019 til að fram­reikna fjölda ferða­manna það sem eftir lifir árs. Slík æfing bendir til þess að fjöldi erlendra ferða­manna sem heim­sækja landið það sem eftir lifir árs gæti legið á bil­inu 165 til 200 þús­und. Reyn­ist nauð­syn­legt að beita harð­ari sótt­varna­ráð­stöf­unum til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar en draga veru­lega úr eða koma í veg fyrir komur ferða­manna gæti þjóð­ar­búið orðið af 20-24 mö.kr til árs­loka vegna minni umsvifa í ferða­þjón­ust­u.“

Á móti hafi Íslend­ingar flutt til lands­ins neyslu sem ella hefði átt sér stað erlend­is, en korta­velta Íslend­inga hér á landi í júní óx um 13 millj­arða króna sam­an­borið við sama mánuð í fyrra og um 12,7 millj­arða króna í júlí.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent