Niðurstöður úr fyrri skimun allra ráðherra ríkisstjórnarinnar nema tveggja, vegna kórónuveiru, reyndust neikvæðar í öllum tilfellum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þurftu ekki að fara í skimun
Ráðherrarnir fara í síðari skimun á mánudag.
Greint var frá því í gær að ákveðið hefði verið að nær allir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands þyrftu að fara í tvöfalda skimun og viðhafa smitgát á milli, eftir að nokkur kórónuveirusmit greindust daginn áður hjá einstaklingum sem dvöldu á Hótel Rangá.
Í tilkynningu vegna þess kom fram að ráðherrar ríkisstjórnarinnar teljist til „ytri hrings hins mögulega smithóps“ og séu því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smiti.
Tveir ráðherrar sluppu
Tveir ráðherrar snæddu ekki á Hótel Rangá, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra. Þau þurftu því ekki að undirgangast ráðstafanirnar.
Ráðstafanir sóttvarnaryfirvalda í kjölfar athugunar smitrakningarteymis skipta þeim sem höfðu viðkomu á Hótel Rangá í þrjá hópa.
Fyrsti hópurinn er sá sem er líklegastur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og hóf í gær 14 daga sóttkví. Annar hópurinn var talinn minna líklegur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og fór í eina skimun og viðhefur úrvinnslusóttkví þar til niðurstaða úr skimun berst.
Þriðji hópurinn, sem ríkisstjórnin tilheyrir og er sömuleiðis minna útsettur fyrir smitum, þarf að fara í tvöfalda skimun og viðhafa smitgát á milli, sem er sú aðferð sem notuð hefur verið fyrir heilbrigðisstarfsfólk, lögreglufólk, framlínufólk í orkufyrirtækjum og lykilstarfsfólk hjá fjölmiðlum og í stjórnkerfinu.