Nýtt brunavarnasvið HMS á Sauðárkróki nærri fullmannað

Búið er að ráða framkvæmdastjóra, forvarnafulltrúa og sérfræðinga í brunavörnum og slökkvistarfi á brunavarnasviði HMS sem tekur til starfa á Sauðárkróki 1. október. Enginn starfsmaður í deild brunavarna í Reykjavík mun starfa á nýju sviði á Sauðárkróki.

Nýtt brunavarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar tekur til starfa á Sauðárkróki þann 1. október næstkomandi.
Nýtt brunavarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar tekur til starfa á Sauðárkróki þann 1. október næstkomandi.
Auglýsing

Sex starfs­menn hafa verið ráðnir til starfa á nýju bruna­varna­sviði Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) á Sauð­ár­króki. Nýtt bruna­varna­svið HMS mun taka til starfa á starfs­stöð stofn­un­ar­innar á Sauð­ár­króki þann 1. októ­ber næst­kom­andi. Til­kynnt var um flutn­ing starf­sem­innar til Sauð­ár­króks í byrjun sum­ars en flutn­ing­ur­inn er liður í áformum rík­is­stjórn­ar­innar um að fjölga opin­berum störfum á lands­byggð­inni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá HMS.



­Fyrr í þessum mán­uði fjall­aði Kjarn­inn um ráðn­ingu Þor­geirs Ósk­ars Mar­geirs­sonar í stöðu fram­kvæmda­stjóra en nú er búið að ráð for­varna­full­trúa og fjóra sér­fræð­inga á sviði bruna­varna og slökkvi­starfs. Alls bár­ust á þriðja tug umsókna um störf­in. Fimm af starfs­mönn­unum sex munu flytj­ast á Sauð­ár­krók á næstu mán­uðum ásamt fjöl­skyldum sínum en einn starfs­maður býr þar nú þeg­ar.

Auglýsing


For­varna­full­trúi og sér­fræð­ingar í bruna­vörnum og slökkvi­starfi ráðnir

Í stöðu for­varna­full­trúa bruna­varna­sviðs­ins hefur verið ráðin Eyrún Vikt­ors­dótt­ir. Hún starf­aði áður sem lög­fræð­ingur og verk­efna­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Arctic Fish og sem lög­fræð­ingur hjá Dattaca Labs sem sér­fræð­ingur í per­sónu­vernd. Hún er lög­fræð­ingur frá Háskól­anum í Reykja­vík og í til­kynn­ingu segir að í störfum Eyrúnar hafi hún komið að almanna­tengsl­um, kynn­ing­ar- og fræðslu­málum og greina­skrif­um.

Nýir starfsmenn brunavarnasviðs HMS á Sauðárkróki. Mynd: HMS

Þeir Ásgrímur Sveins­son og Grétar Þór Þor­steins­son hafa verið ráðnir sem sér­fræð­ingar í bruna­vörn­um. Ásgrímur er að ljúka meist­ara­prófi í verk­fræði frá DTU og Grétar Þór er umhverf­is- og orku­tækni­fræð­ingur og vél­virkja­meist­ari. 



Þá hafa þeir Stefán Árna­son og Þor­lákur Snær Helga­son verið ráðnir sem sér­fræð­ingar í slökkvi­starfi. Stefán er mennt­aður slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­ings­mað­ur, er með meistara­gráðu í stjórnun og stefnu­mótun og B.Sc. gráður í líf­fræði. Þor­lákur Snær er einnig mennt­aður slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­mað­ur.



Nýtt svið tvö­falt stærra en það gamla

Í til­kynn­ing­unni segir að nýtt bruna­varna­svið verði tvö­falt stærra en það gamla. „Hlut­verk hins nýstofn­aða bruna­varna­sviðs verður að stýra og stór­efla bruna­varnir á vegum rík­is­valds­ins. Fjórir starfs­menn sinna nú þessum mála­flokki sér­stak­lega hjá HMS í deild bruna­varna í Reykja­vík. Tveir starfs­menn deild­ar­innar hafa þegið störf á nýju sviði öryggis mann­virkja hjá HMS og munu þeir starfa áfram hjá HMS í Reykja­vík. Sex starfs­menn munu hefja störf á bruna­varna­sviði á Sauð­ár­króki í haust og gert er ráð fyrir að átta starfs­menn muni sinna þessum verk­efnum á Sauð­ár­króki þegar sviðið verður full mannað á næstu mán­uð­u­m,“ segir í til­kynn­ing­unni.



Í til­kynn­ing­unni segir að ljóst sé að breyt­ingin muni hafa „um­tals­verð og jákvæð áhrif á íbúa­fjölda og mann­lífið í Skaga­firð­i.“ Það sé ánægju­legt að með breyt­ing­unni hafi skap­ast atvinnu­tæki­færi sem geri ungum fjöl­skyldum mögu­legt að snúa til starfa í sinni gömlu heima­byggð þar sem þau ólust upp segir þar enn frem­ur.



Líkt og áður segir munu tveir starfs­menn sem nú starfa í deild bruna­varna í Reykja­vík ekki flytja til Sauð­ár­króks og hafa þeir þegið störf í öðrum deildum HMS. Tveir starfs­menn sem starfað hafa í deild bruna­varna hafa sagt upp störf­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent