Jón Óttar Ólafsson segir að það hafi verið rangt af sér að senda Helga Seljan, blaðamanni hjá RÚV, SMS-skilaboð. Þau endurspegli dómgreindarbrest af hans hálfu og hann segist sjá mikið eftir að hafa sent þau. Jóni Óttari finnst miður ef þessi gagnrýniverða háttsemi hans verði á einhvern hátt bendluð við Samherja „og starfsfólk þess því hún er alfarið á mína ábyrgð“.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann hefur sent Kjarnanum vegna umfjöllunar sem birtist fyrr í dag.
Í umfjölluninni var greint frá því að Jón Óttar, sem starfað hefur fyrir Samherja og er fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, hafi allt frá því að umfjöllun Kveiks og Stundarinnar um viðskiptahætti Samherja í Namibíu birtist þann 12. nóvember á síðasta ári verið tíður gestur á Kaffifélaginu, kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur, einatt til að hitta á og ná tali af Helga Seljan – en þar hittist hópur fólks iðulega á morgnana til að spjalla um daginn og veginn.
Í yfirlýsingu Jóns Óttars segir hann:
„Vefritið Kjarninn fjallar í dag um SMS-skilaboð sem ég sendi Helga Seljan, fréttamanni hjá Ríkisútvarpinu. Það var rangt af mér að senda umrædd skilaboð, þau endurspegla dómgreindarbrest af minni hálfu og ég sé mikið eftir því að hafa sent þau. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að biðja Helga Seljan afsökunar á þessum sendingum.
Án þess að ég vilji reyna að réttlæta skilaboðin og efni þeirra finnst mér mikilvægt að fram komi að ég hef undanfarið verið undir miklu álagi. Einkum vegna neikvæðrar umfjöllunar í fjölmiðlum um mig persónulega. Nær öll skilaboðin voru send fyrr í þessum mánuði þegar umrædd fjölmiðlaumfjöllun var hvað mest áberandi með tilheyrandi óþægindum fyrir mig og fjölskyldu mína.
Þá finnst mér rétt að undirstrika að heimsóknir mínar á kaffihúsið Kaffifélagið við Skólavörðustíg voru ekki til þess að elta Helga Seljan, eins og kemur fram í umfjöllun Kjarnans, enda hef ég verið viðskiptavinur kaffihússins í mörg ár. Hafa heimsóknir mínar þangað ekkert með Helga að gera og er því umfjöllun Kjarnans röng hvað þetta snertir. Ég get hins vegar ekki stýrt því hvernig Helgi Seljan upplifir samskipti okkar í gegnum árin.
Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum hef ég sinnt ráðgjöf fyrir Samherja hf. sem verktaki. Tekið skal fram að stjórnendur félagsins höfðu ekki vitneskju um skilaboð mín til Helga. Mér finnst miður ef þessi gagnrýniverða háttsemi mín verði á einhvern hátt bendluð við félagið og starfsfólk þess því hún er alfarið á mína ábyrgð.“
Hægt er að lesa umfjöllun Kjarnans um áreiti Jóns Óttars hér.