Forystukonur ASÍ, BHM og BSRB mótmæla því að enginn fulltrúi launafólks hafi fengið sæti í starfshópi sem mun leggja mat á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnamálum. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá félögunum þremum sem undir skrifa Drífa Snædal, forseti ASÍ, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM.
Tilkynnt var í dag um skipan hópsins. Honum er ætlað að meta skammtímaáhrif og áhrif á getu hagkerfisins til þess að taka við sér af krafti að nýju þegar faraldurinn og áhrif hans líða hjá. Hópinn skipa Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, mun starfa með hópnum.
Þær Drífa, Sonja Ýr og Þórunn kalla eftir því að starfshópur fjármálaráðherra sem muni vinna þessar greiningar verði breikkaður þannig „að sjónarmið fleiri en atvinnurekenda fái að koma þar fram. Það er gamaldags viðhorf að efnahagsmál snúist fyrst og fremst um fyrirtæki en ekki heimili og almenning.“
Vilja fulltrúa launafólks að borðinu
Í yfirlýsingunni er vísað í tilkynningu fjármálaráðuneytisins um skipan starfshópsins en þar var tekið fram að hópurinn eigi að taka tillit til ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. „Þar hefur fulltrúi stórfyrirtækja, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, verið kallaður til en fulltrúar launafólks eru víðs fjarri. Þetta er til marks um rörsýn fjármálaráðherra í efnahagsmálum, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt samfélag til framtíðar,“ eins og það er orðað í yfirlýsingunni.
Í yfirlýsingunni krefjast þær þess að fjármálaráðherra boði fulltrúa launafólks að borðinu þegar í stað. „Að öðrum kosti verða tillögur starfshópsins og vinna hans ómerk.“