Vill framlengingu á uppsagnarúrræði

Forstjóri Airport Associates vonast til þess að ákvörðun um hertar aðgerðir á landamærum verði snúið við og landið opnað á ný. Hann segir ríkið geta komið til móts við fyrirtæki í erfiðri stöðu með því að lengja uppsagnarúrræðið.

Keflavíkurflugvöllur
Auglýsing

Ríkið gæti komið til móts við fyr­ir­tæki í erf­iðri stöðu með því að fram­lengja launa­greiðslur fólks á upp­sagn­ar­fresti, þetta segir Sig­þór Krist­inn Skúla­son, for­stjóri Air­port Associ­ates í sam­tali við Kjarn­ann. 



Í vor sagði félagið upp um 130 starfs­mönnum og nýtti þá upp­sagnar­úr­ræði stjórn­valda sem felur í sér að ríkið greiði mestan hluta launa í upp­sagn­ar­fresti. Sig­þór hafi talið það ábyrg­ara á sínum tíma að fara strax í upp­sagnir í stað­inn fyrir að setja starfs­fólk á hluta­bóta­leið­ina þegar óvissan um fram­tíð­ina var algjör. „Það var öll flug­um­ferð dottin niður og við sáum ekki fram á að það yrði nein flug­um­ferð í bráð. Menn voru jafn­vel að tala um margra, margra mán­aða stopp,“ segir hann.



Þegar upp­sagn­ar­frestur þessa starfs­fólks var að renna út í lok júlí hafði starf­semin tekið við sér, fjöldi véla kom og fór frá Kefla­vík­ur­flug­velli á degi hverjum og útlitið var bjart. Því var ráð­ist í end­ur­ráðn­ingar á starfs­fólki.  „Það var ekk­ert sem benti til þess að stjórn­völd á þeim tíma­punkti myndu taka ákvörðun um að loka land­inu eins og nú er að ger­ast,“ segir Sig­þór.

Auglýsing

Sigþór Kristinn Skúlason er forstjóri Airport Associates. Mynd: Airport Associates.

Í nákvæm­lega sömu stöðu og í vor

Nú er staðan sú að lítið er á döf­inni og starfs­fólk margt hvert komið á hluta­bóta­leið­ina. „Við erum alla­vega að nýta okkur þetta úrræði rík­is­stjórn­ar­inn­ar, við erum ekki að segja upp fólki núna því við erum að von­ast til þess að menn snúi við þess­ari ákvörðun og opni landið með ein­hverjum hætti. Við mátum stöð­una þannig að menn hlytu að opna landið aft­ur. Þannig að við erum ekki í neinum upp­sögn­um, við erum að fara aftur í 50 pró­sent leið­ina,“ segir Sig­þór.



Upp­sagnir eru auk þessi ekki fýsi­legur kostur fyrir fyr­ir­tæk­ið, enda hefur það nú þegar notað þá þrjá mán­uði sem boðið er upp á í upp­sagnar­úr­ræð­inu fyrir starfs­fólkið sem áður hafði verið sagt upp. Sig­þór væri helst til í að geta nýtt úrræðið áfram en getur það ekki. Hann seg­ist skilja að upp­haf­lega hafi úrræðið veri bundið við þrjá mán­uði, en „að sama fyr­ir­tæki lendi aftur í nákvæm­lega sömu stöðu, það er svo­lítið absúr­d.“



Hann segir ríkið hæg­lega geta breytt þessu með því að lengja tíma­bilið sem upp­sagnar­úr­ræðið nær til. „Til þess að mæta þessum fyr­ir­tækjum þá væri bara hægt að lengja þessi úrræð­i,“ segir Sig­þór.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent