Samkeppniseftirlitið segir mikilvægt að afmarka ríkisábyrgð við flugrekstur

Samkeppniseftirlitið telur mikilvægt að áformuð ríkisábyrgð til Icelandair Group sé afmörkuð eins og kostur er við flugrekstur félagsins, áætlunarflug til og frá landinu. Þetta segir stofnunin varða bæði hagsmuni keppinauta félagsins og almennings.

Samkeppniseftirlitið telur mikilvægt að afmarka ríkisábyrgð til Icelandair Group við flugrekstur
Samkeppniseftirlitið telur mikilvægt að afmarka ríkisábyrgð til Icelandair Group við flugrekstur
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mik­il­vægt að áformuð rík­is­á­byrgð til Icelandair Group sé afmörkuð eins og kostur er við flug­rekstur félags­ins, áætl­un­ar­flug til og frá land­inu. Þetta segir stofn­unin varða bæði hags­muni keppi­nauta félags­ins á fjöl­breyttum sviðum flugs, flug­tengdrar þjón­ustu og ferða­þjón­ustu og hags­muni við­skipta­vina og efna­hags­lífs af virkri sam­keppni á þessum mörk­uð­um.

Þetta kemur fram í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til fjár­laga­nefndar Alþingis um áform um rík­is­á­byrgð til sam­stæð­unn­ar. Eft­ir­lits­stofn­unin bendir á að það gæti haft skað­leg áhrif í sam­keppni í flug­afgreiðslu, inn­an­lands­flugi og ferða­þjón­ustu ef Icelandair Group gæti nýtt sér rík­is­að­stoð­ina til að mæta rekstr­ar­kostn­aði ann­arra þátta sam­stæð­unnar en áætl­un­ar­flug­inu einu.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið bendir á að þrátt fyrir að yfir­lýst mark­mið rík­is­að­stoð­ar­innar sé að rík­is­á­byrgðin verði bein­tengd við það tjón sem til er komið vegna áhrifa veiru­far­ald­urs­ins á flug­rekstur félags­ins, sé engin vísun í skil­málum láns­fjár­mögn­un­ar­innar til þess að nýt­ing á umræddri rík­is­að­stoð sé bundin við flug­rekstur félags­ins.

Auglýsing

„Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er því óljóst að hvaða leyti Icelandair Group muni geta nýtt rík­is­að­stoð­ina til fram­an­greindrar starf­semi sem ekki með beinum hætti felur í sér reglu­bundið áætl­un­ar­flug,“ ­segir í umsögn­inni og því bætt við að því sé mik­il­vægt að hafa í huga að á ýmsum öðrum sviðum sé Icelandair Group í sam­keppni „við mun minni keppi­nauta og ljóst er að rík­is­að­stoð af því tagi sem um ræðir hefur skað­leg áhrif á sam­keppni og rekstur þess­ara keppi­nauta sem ekki njóta sam­bæri­legrar fyr­ir­greiðslu.“ Á þetta hafa ferða­þjón­ustur þegar bent í umsögnum sínum til fjár­laga­nefnd­ar.

Telur vert að skoða að skil­yrða rík­is­að­stoð við aðskilnað ein­inga Icelandair Group

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir í umsögn sinni að sam­hliða ákvörð­unum um rík­is­að­stoð til handa Icelandair Group taki stjórn­völd „upp­lýsta ákvörðun um það hvernig þau hyggj­ast standa vörð um virka sam­keppni í flugi til og frá land­inu, flug­tengdri ­þjón­ustu og afleiddum sviðum ferða­þjón­ustu þar sem fyr­ir­sjá­an­legt er að rík­is­að­stoðin mun­i hafa skað­leg áhrif á sam­keppn­i.“



Í þessu ljósi telur Sam­keppn­is­eft­ir­litið sem áður segir nauð­syn­legt að tryggja að rík­is­á­byrgðin verði aðeins nýtt til flug­rekstrar og einnig að áhrif rík­is­að­stoðar á keppi­nauta Icelandair verði metin og afstaða tekin til þess hvort ástæða sé til stuðn­ings­að­gerða gagn­vart þeim til að „ná fram þeim heild­ar­mark­miðum sem liggja til grund­vallar áform­aðri rík­is­að­stoð.“



Einnig segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið að greina þurfi hvaða aðgerða stjórn­völd geti gripið til í því skyni að draga úr aðgangs­hindr­unum inn á við­kom­andi mark­aði og nefnir eft­ir­lits­stofn­unin að til álita gæti komið að skil­yrða rík­is­að­stoð með ein­hverjum hætt­i. 



Til dæm­is, segir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið, væri hægt að skoða að skil­yrða rík­is­að­stoð við það að starf­semi sem ekki eigi að njóta rík­is­stuðn­ings sé klofin frá félag­inu eða aðskilin fjár­hags­lega, eða að skapað verði rými fyrir nýjan keppi­naut í áætl­un­ar­flugi með fram­sali afgreiðslu­tíma.

Áform Play „þýð­ing­ar­mik­il“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir gríð­ar­lega hags­muni fyrir íslenskt efna­hags­líf og almenn­ing fólgna í því að sam­keppni sé til staðar á mark­aði flug­fé­laga með bæki­stöðvar á Íslandi. Það hafi sést bæði þegar Iceland Express og WOW air voru starf­and­i. 



Því meti Sam­keppn­is­eft­ir­litið það sem svo að áform Play um að hefja flug­rekstur á Íslandi séu „þýð­ing­ar­mikil í sam­keppn­is­legu til­lit­i.“ ­Stofn­unin seg­ir, með hlið­sjón af þessu, að mik­il­vægt sé að rík­is­að­stoð til Icelandair Group vinni ekki gegn nýrri sam­keppni eins og þeirri sem Play boð­ar.















Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent