Segir Eyþór enn eiga eftir að koma hreint fram varðandi tengsl við Samherja

Borgarfulltrúi Pírata segir það á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins að oddviti hans í borginni komist upp með að koma ekki hreint fram um tengsl sín við Samherja. Oddvitinn segir skítkast aldrei „mjög góða pólitík“.

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn.
Auglýsing

„Mér finnst áhuga­vert að heyra Eyþór [Arn­alds] tala hérna um Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem stærsta flokk­inn og dásama hann mikið þegar að Eyþór hefur ennþá ekki komið hreint fram varð­andi tengsl sín við Sam­herja og af hverju hann þáði fé frá fyr­ir­tæki sem greiddi öðrum stjórn­mála­mönnum víða um heim fé,“ sagði Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dótt­ir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs og full­trúi Pírata í borg­ar­stjórn, í umræðum í Silfr­inu á RÚV í morg­un. Þetta sagði hún í umræðu um nið­ur­stöður skoð­ana­kann­ana á fylgi flokka í borg­inni. Vís­aði hún þar í kaup Eyþórs, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, á hlut félags í eigu Sam­herja í Morg­un­blað­inu sem og meintar mútu­greiðslur Sam­herja til stjórn­mála­manna í Namibíu sem nú eru til rann­sókn­ar.



„Það er svo­lítið magnað að fram­koma Sam­herja gagn­vart sam­fé­lag­inu gegn fjöl­miðlum og til dæmis Seðla­bank­an­um, er óhugn­an­leg,“ hélt Sig­ur­borg áfram. „Það er á ábyrgð Sjálf­stæð­is­flokks­ins að odd­vit­inn skuli kom­ast upp með það að koma ekki hreint fram. Það sýnir okkur að það er ekki mikið sið­ferði í flokkn­um. Það er eng­inn staður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í því sam­fé­lagi sem við viljum búa í.“

Auglýsing


Eyþór sagði að orð Sig­ur­borgar lýstu ákveð­inni „yf­ir­lýs­inga­gleði“ og „úti­lok­una­stefn­u“. Hann sagði eign­ar­hlut sinn í Morg­un­blað­inu víða skráð­an, „ekki bara hjá rík­is­skatt­stjóra, fjöl­miðla­nefnd og nátt­úr­lega í hags­muna­skrá borg­ar­innar og víð­ar. Þannig að þetta er bara gömul plata. Þegar það er óþægi­legt að tala mál­efna­lega þá fara menn oft í þennan ham. [...] Skít­kast er aldrei mjög góð póli­tík.  Ég vil nefna það en takk fyrir að draga okkur aftur nið­ur,“ sagði Eyþór.



„Stað­reynd­irnar tala sínu máli,“ svar­aði Sig­ur­borg.



Stundin hefur greint frá því að Eyþór hafi keypt hlut sinn í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, með kúlu­láni, sem var upp­haf­lega 225 millj­ónir króna, frá félagi í eigu Sam­herja. Þá hefur einnig komið fram í Stund­inni að Sam­herji hafi afskrifað stóran hluta láns­ins sem fyr­ir­tækið veitti Eyþóri fyrir kaup­un­um.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent