Fjölgun smita áhyggjuefni – fólk með einkenni gengur fyrir

Gríðarleg ásókn er í sýnatökur vegna kórónuveirunnar og biðlar landlæknir til þeirra sem eru einkennalausir að bóka ekki tíma. Þeir sem eru með einkenni verði að ganga fyrir.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, landlæknir.
Auglýsing

„Það er gríð­ar­leg ásókn í sýna­tökur og tímar sem fólk getur bókað sjálft á heilsu­ver­a.is bók­uð­ust upp fljótt. Því viljum við biðja þá sem ekki eru með ein­kenni og hafa ekki rök­studdan grun að hafa orðið fyrir smiti að bóka ekki eða biðja um sýna­töku að svo stödd­u.“

Þetta sagði Alma Möller land­læknir á blaða­manna­fundi almanna­varna í dag.

Þá vildi hún sér­stak­lega biðla til fyr­ir­tækja að krefj­ast ekki skimunar fyrir starfs­fólk nema til komi ósk frá smitrakn­ingateymi.

Auglýsing

Þeir sem eru í sótt­kví fá boð um að mæta í sýna­töku

­Þrjá­­tíu ný til­­­felli af COVID-19 greindust hér á landi í gær. Allir þeir sem greindust höfðu farið í sýna­­töku vegna ein­­kenna. Í gær vor­u ­tekin 2.395 sýni vegna kór­ón­u­veirunn­­ar, þar af 1.077 ein­­kenna­­sýni. Þetta eru ­tölu­vert færri sýni en tekin voru á föst­u­dag og sunn­u­dag en þó fleiri en dag­ana þar á und­­an. Rétt rúm­­lega helm­ingur þeirra sem greind­ist í gær var í sótt­­­kví við grein­ingu.

Fram kom í máli Ölmu að áfram væri hægt að fá sím­tal við heilsu­gæsl­una varð­andi hugs­an­legar sýna­tök­ur. Hún sagði að þeir sem eru með ein­kenni sem sam­rým­ast COVID-19 yrðu að geta gengið fyrir þannig að þeim væri for­gangs­rað­að. Þá ítrek­aði hún að þeir sem eru í sótt­kví fengju boð þegar þeir eiga að mæta í sýna­töku og ekki þýddi að reyna að fá henni flýtt.

Staðan alvar­leg

Alma sagði á fund­inum að þessi fjölgun smita væri áhyggju­efni – staðan væri alvar­leg og þess vegna þyrfti að skerpa á öllum þáttum sótt­varna.

„Það eru þegar miklar aðgerðir í gangi og það er mikið í höndum okkur sem ein­stak­linga hvernig mál þró­ast og við verðum að taka okkur á.

Við ættum að forð­ast marg­menni og þétta okkar innsta kjarna eða þá sem við umgöng­umst mest – einkum þeir sem til­heyra áhættu­hóp­um. Þeir sem reka stofn­anir og fyr­ir­tæki þurfa að gera allt sem þeir geta til að gæta ýtr­ustu sótt­varna. Það er hvatt til fjar­vinnu og fjar­kennslu eins og kostur er. Það er hvatt til grímunotk­un­ar,“ sagði hún.

Óska eftir lið­sinni heil­brigð­is­starfs­fólks í bak­varða­sveit

Heil­brigð­is­yf­ir­völd ósk­uðu í morgun eftir lið­sinni heil­brigð­is­starfs­fólks í bak­varða­sveit heil­brigð­is­þjón­ust­unn­ar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðu­búið að koma tíma­bundið til starfa í heil­brigð­is­þjón­ust­unni með skömmum fyr­ir­vara, hvort heldur í fullt starf, hluta­starf eða í tíma­vinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

Bak­varða­sveit heil­brigð­is­þjón­ust­unnar var sett á fót í upp­hafi COVID-19 far­ald­urs­ins í vor þegar ljóst var að mik­il­vægar heil­brigð­is­stofn­anir gætu lent í mönn­un­ar­vanda vegna veik­inda­fjar­vista starfs­fólks eða fjar­vista vegna sótt­kví­ar.

Lokun kráa og skemmti­staða fram­lengd

Einnig til­kynntu heil­brigð­is­yf­ir­völd í dag að Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefði fall­ist á til­lögu sótt­varna­læknis um að fram­lengja tíma­bundna lokun skemmti­staða og kráa til og með sunnu­dags­ins 27. sept­em­ber næst­kom­andi.

Sem fyrr tekur lok­unin til kráa og skemmti­staða í Reykja­vík, Mos­fells­bæ, Hafn­ar­firði, Garða­bæ, Kópa­vogi, Kjós­ar­hreppi og á Sel­tjarn­ar­nesi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent