Egypska Khedr-fjölskyldan fékk rétt í þessu dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærunefnd útlendingamála féllst á sjónarmið fjölskyldunnar um endurupptöku. Þetta staðfestir Magnús D. Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar, í samtali við Kjarnann.
„Þetta er sigur fyrir íslenskt samfélag enda hefði fyrirhuguð brottvísun orðið ævarandi svartur blettur í sögu þjóðarinnar. Mælikvarði á gildi hvers samfélags er hvernig það kemur fram við sína viðkvæmustu hópa og þar eru börn fremst í flokki,“ segir hann.
Þá kemur fram í máli hans að almenningur allur og félagasamtök á borð við Solaris og No Borders hafi tekið afstöðu með fjölskyldunni og sýnt það í verki. Fjölskyldan kunni öllum þeim sem studdu hana miklar þakkir.
Óskandi að Útlendingastofnun breyti verklagi sínu í kjölfarið
Magnús segir það vera óskandi að málið verði til þess að ryðja brautina fyrir önnur börn á flótta og að Útlendingastofnun breyti verklagi sínu með tilliti til mats á hagsmunum barna.
„Slíkt mat á ávallt að vera sjálfstætt og heildstætt og þannig úr garði gerð að hægt sé að taka ákvörðun í hverju máli sem er viðkomandi barni fyrir bestu. Réttlætið sigrar stundum,“ segir hann.