39 greindust með COVID-19 í gær – 464 greinst frá miðjum mánuði

Rétt tæplega fjörutíu smit af kórónuveirunni greindust í gær, sunnudag. Langflestir voru í sóttkví við greiningu en áhöfn línubáts, sem öll smitaðist, er inni í tölum gærdagsins.

Öndunarvél Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson
Auglýsing

Frá 15. sept­em­ber, á tæp­lega hálfs mán­aðar tíma­bili, hafa 464 greinst með COVID-19 hér á landi. Í gær greindust 39 með veiruna inn­an­lands.



Nýgengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þús­und íbúa er nú komið í 128,2. Það var 13,6 fyrir um tveimur vikum eða um það leyti sem þriðja bylgja far­ald­urs­ins hér á landi hófst.



Fjórir sjúk­lingar eru inniliggj­andi á Land­spít­al­anum og í gær var einn þeirra kom­inn á gjör­gæslu­deild og í önd­un­ar­vél.

Auglýsing


Í gær voru 1.385 sýni tekin á land­inu og þar af 629 við landa­mær­in. Þetta er nokkuð minni fjöldi en síð­ustu daga enda eru yfir­leitt tekin færri sýni á sunnu­dögum en aðra daga vik­unn­ar. Mik­ill meiri­hluti þeirra sem greind­ist í gær var þegar í sótt­kví eða 87 pró­sent.



Í heild eru 492 í ein­angrun vegna COVID-19 og tæp­lega 1.900 manns í sótt­kví. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins í lok febr­úar hafa 2.663 fengið COVID-19 á Íslandi. Tíu eru lát­in.



Hræði­leg staða að vera með hóp­sýk­ingu úti á sjó



Inni í tölum gær­dags­ins er hóp­sýk­ing sem kom upp um borð í línu­skip­inu Valdi­mar GK. Stað­fest var í gær að allir fjórtán skip­verjarnir væru með COVID-19. Í frétt RÚV kemur fram að veik­indi hefðu komið upp um borð á fimmtu­dags­kvöldið er skipið var að veiðum vestur af Horna­firði. Þegar fleiri tóku að veikj­ast var ákveðið að snúa til hafn­ar.



Björn Hall­dórs­son, örygg­is­stjóri útgerð­ar­fé­lags­ins Þor­bjarnar sem gerir Valdi­mar GK út, sagði í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi að það væri hræði­leg staða að vera með hóp­sýk­ingu úti á sjó. Þegar ákveðið var að taka stefn­una í land var sól­ar­hrings­sigl­ing í „skíta­brælu“ fyrir hönd­um. Allt hafi þó gengið vel.



150 starfs­menn Land­spít­ala í skimun



Land­spít­al­inn er á hættu­stigi vegna far­ald­urs­ins. Við­bragðs­á­ætlun vegna far­sótta hefur verið virkjuð á ný. Við­bragðs­stjórn og far­sótta­nefnd funda dag­lega.



Í dag stendur til að skima fyrir COVID-19 hjá um 150 starfs­mönnum Land­spít­al­ans í Foss­vogi. Vegna fjölg­unar inn­lagna á sjúkra­húsið og vax­andi þunga í eft­ir­liti á COVID-­göngu­deild­inni hefur við­bún­aður á smit­sjúk­dóma­deild­inni, sem er í Foss­vogi, verið auk­inn.



Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði í sam­tali við Frétta­blaðið í gær að hann væri til­bú­inn með til­lögur að hertum aðgerðum ef á þyrfti að halda vegna áfram­hald­andi útbreiðslu kór­ónu­veirunnar hér á landi. Hann benti á að árangur af aðgerðum sem gripið var til síð­ast, t.d. tíma­bundin lokun vín­veit­inga­staða, taki sinn tíma að koma í ljós.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent