Tveir á gjörgæslu með COVID-19 – 32 ný smit

32 ný smit af kórónuveirunni greindust í gær, mánudag, og eru 525 eru nú með COVID-19 hér á landi og í einangrun. Tveir sjúklingar eru nú á gjörgæslu.

Í gær voru tekin yfir 2.300 sýni.
Í gær voru tekin yfir 2.300 sýni.
Auglýsing

Frá 15. sept­em­ber, á hálfs mán­aðar tíma­bili, hafa tæp­lega 500 manns eða 496 greinst með COVID-19 hér á landi. Í gær greindust 32 með veiruna inn­an­lands og 525 eru nú með sjúk­dóm­inn og í ein­angr­un.



Nýgengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þús­und íbúa er nú komið í 135,3. Það var 13,6 fyrir tveimur vikum eða um það leyti sem þriðja bylgja far­ald­urs­ins hér á landi hófst. Í sam­an­burði við önnur Evr­ópu­lönd er Ísland ofar­lega á lista yfir þau lönd þar sem nýgengi er hæst. Á Spáni er nýgengið hæst eða um 320 á hverja 100 þús­und íbúa. Nýgengi í Dan­mörku er tæp­lega 128 en í Sví­þjóð er það 42,7 og í Nor­egi 28,9 svo dæmi séu tek­in.



Fimm sjúk­lingar eru inniliggj­andi á Land­spít­al­anum og í gær voru tveir þeirra á gjör­gæslu­deild.

Auglýsing


Í gær voru 2.328 sýni tekin á land­inu og þar af 564 við landa­mær­in. Þetta er nokkuð minni fjöldi en síð­ustu daga enda eru yfir­leitt tekin færri sýni á sunnu­dögum en aðra daga vik­unn­ar. Rétt rúm­lega helm­ingur þeirra sem greind­ist í gær var þegar í sótt­kví.



Flestir þeirra sem eru í ein­angrun eru á aldr­inum 18-29 ára eða 153.



Í heild eru 525 í ein­angrun vegna COVID-19 og 1.620 manns í sótt­kví. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins í lok febr­úar hafa 2.695 fengið COVID-19 á Íslandi. Tíu eru lát­in.



Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að hann teldi ekki til­efni að herða aðgerðir inn­an­lands. Margir þeirra sem væru að grein­ast væru í sótt­kví og að sam­fé­lags­smit virt­ist á nið­ur­leið.



Fjórum skurð­stofum af átta á Land­spít­ala Foss­vogi hefur verið lokað og sjúk­lingar því ekki kall­aðir inn til aðgerða þar í ljósi við­bún­aðar vegna smita og sótt­kvía starfs­manna. Bráða­að­gerðum verður þó sinnt, sagði í til­kynn­ingu á vef Land­spít­ala í gær.



Í gær voru 37 starfs­menn spít­al­ans í ein­angrun og 177 í sótt­kví.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent