Samherji hf. hagnaðist um níu milljarða og á eigið fé upp á 63 milljarða

Annar helmingur Samherjasamstæðunnar, sem heldur utan um þorra innlendrar starfsemi hennar, hagnaðist vel á síðasta ári. Eignarhald á henni var fært að hluta til barna helstu stjórnenda Samherja á síðasta ári.

Þorsteinn Már Baldvinsson, er annar forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, er annar forstjóri Samherja.
Auglýsing

Sam­herji hf., annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, hagn­að­ist um 64,8 millj­ónir evra, um níu millj­arða króna á með­al­gengi árs­ins 2019, í fyrra. Það er mjög svip­aður hagn­aður og var af starf­sem­inni árið 2018, þegar hagn­að­ur­inn var 63,7 millj­ónir evra. Um er að ræða þann hluta sem heldur utan um þorra inn­lendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og starf­semi hennar í Fær­eyj­um.

 Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Sam­herj­a. 

Til­kynnt var opin­ber­lega um eig­enda­skipti á Sam­herja hf. 15. maí síð­ast­lið­inn. Þá birt­ist til­kynn­ing á heima­síðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar um að Þor­steinn Már Bald­vins­son, Helga S. Guð­munds­dóttir og Krist­ján Vil­helms­son væru að færa næstum allt eign­ar­hald á Sam­herja hf., sem er eign­ar­halds­fé­lag utan um þorra starf­semi sam­stæð­unnar á Íslandi og í Fær­eyj­um, til barna sinna. 

Þau halda hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­sem­inni, og halda á stórum hlut í Eim­skip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eign­ar­halds­fé­lagi, Sam­herja Hold­ing ehf. 

Auglýsing
Stærsti eig­andi Sam­herja hf. í dag er félagið K&B ehf., sem er í 2,1 pró­sent eigu Þor­steins Más, for­stjóra Sam­herja, 49 pró­sent eigu Bald­vins Þor­steins­son­ar, sonar hans, og 48,9 pró­sent eigu Kötlu Þor­steins­dótt­ur, dóttur Þor­steins Más. Það á 43,1 pró­sent í félag­inu. Þar á eftir kemur Krist­ján Vil­helms­son með 28,3 pró­sent hluti. Þar á eftir kemur félagið Bliki ehf. með 11,9 pró­sent hlut. Fram­In­vest Sp/f er skráð fyrir 27,5 pró­­senta hlut í Blika. Það félag er skráð í Fær­eyj­­um. Þor­­steinn Már er helsti skráði stjórn­­andi þess félags.

Á annað hund­rað millj­arðar í eigið fé

Eignir Sam­herja hf. voru metnar á 497,9 millj­ónir evra um síð­ustu ára­mót, eða um 69 millj­arða króna. á meðal þeirra eru afla­heim­ildir sem úthlutað hefur verið til sam­stæð­unnar svo hún geti veitt fisk í íslenskri land­helg­i. 

Sam­herji hf. er ekki með mikið af skuld­um. Eigið fé félags­ins er 451,9 millj­ónir evra, tæp­lega 63 millj­arðar króna. 

Sam­herji Hold­ing, hinn helm­ingur sam­stæð­unn­ar, hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi. Sam­herj­a-­sam­stæðan átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok árs 2018. Hagn­aður Sam­herja, þegar bæði Sam­herji hf. og Sam­herji Hold­ing voru talin sam­an, vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­­örðum króna. 

Hagn­aður Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar hafði numið yfir 112 millj­­örðum króna á átta árum, frá árinu 2011 og fram til loka árs 2018. Nú er ljóst að að minnsta kosti níu millj­arðar króna hafa bæst við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent