Algjört lykilatriði að ná smitstuðlinum undir 1

Áætlað er að smitstuðull utan sóttkvíar sé í dag 1,4 á Íslandi. Á meðan að þessi tala er yfir einum er óvissa til staðar um þróun faraldursins og hann gæti farið í veldisvöxt. Þátttaka í sóttvarnaraðgerðum er það sem nær smitstuðlinum niður.

Thor Aspelund prófessor í líftölfræði og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í vor.
Thor Aspelund prófessor í líftölfræði og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í vor.
Auglýsing

Ef þær sótt­varn­ar­að­gerðir sem nú eru í gildi hafa svipuð áhrif og þegar þeim var beitt í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins, smitrakn­ing heldur í við far­ald­ur­inn og helm­ingur þeirra sem grein­ast smituð verða þegar í sótt­kví, ætti smitum að taka að fækka á næstu 10 dög­um.

Þetta kemur fram í bjart­sýn­ari sviðs­mynd af tveimur sem dregnar eru upp í upp­færðu spálík­ani vís­inda­fólks frá Háskóla Íslands, emb­ætti land­læknis og Land­spít­ala, sem birt­ist í dag.

Lyk­il­at­riði er að smit­stuð­ull veirunnar utan sótt­kvíar lækki undir einn, en í dag er hann áætl­aður 1,4, sem þýðir að hver sá sem grein­ist utan sótt­kvíar smiti að með­al­tali 1,4 aðra.

Auglýsing

Hann hefur farið lækk­andi frá því að sam­komu­tak­mark­anir voru hertar 7. októ­ber en miðað við núver­andi stöðu má þó gera ráð fyrir að nokkur fjöldi fólks hafi smit­ast síð­ustu daga og muni grein­ast á næstu dög­um. Innan sótt­kvíar er smit­stuð­ull­inn áætl­aður 0,6.



Fyrri sviðsmynd gerir ráð fyrir að smitstuðullinn fari lækkandi frá því sem nú er.



„Það er mik­il­vægt að hlut­fall grein­inga í sótt­kví fari hækk­andi og gegnir öflug smitrakn­ing lyk­il­hlut­verki í því. Það er einnig mik­il­vægt að sam­fé­lagið allt fylgi til­mælum um sótt­varnir þannig að fjöldi greindra ein­stak­linga utan sótt­kvíar lækki. Þannig gætum við séð smit­stuð­ull­inn lækka á næstu vik­um. Í þeirri stöðu verður hægt að spá til lengri tíma um hámark og hvernig bylgjan muni hnigna,“ segir í þess­ari nýju rýni spáteym­is­ins.

Hvað ef aðgerð­irnar hrífa ekki?

Í hinni sviðs­mynd­inni, sem lítur ekki jafn vel út, er gengið út frá því að núver­andi aðgerðir hafi ekki áhrif á smit­stuð­ul­inn, til dæmis vegna lak­ari þátt­töku almenn­ings í sótt­vörnum en raunin var í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins og að hann hald­ist svip­aður áfram. 

Þó er gert ráð fyrir því að smitrakn­ing verði áfram öflug og helm­ingur smit­aðra verði í sótt­kví við grein­ingu. Í þess­ari sviðs­mynd er meiri óvissa um þró­un­ina og smitum gæti allt eins fjölgað á næstu 10 dög­um.

Meiri óvissa er um þróunina ef aðgerðir verða ekki til þess að smitstuðullinn lækkar.

Nið­ur­staðan í rýni vís­inda­fólks­ins um mögu­lega þróun er sú að það sé algjört grund­vall­ar­at­riði að smit­stuð­ull­inn fari undir 1. 

„Meðan hann er yfir 1, er til staðar ástand þar sem smit geta auð­veld­lega blossað upp og þróað far­ald­ur­inn í veld­is­vísis­vöxt. Það sem hefur áhrif á smit­stuð­ul­inn er okkar hegð­un,“ segir spálík­an­steymið og bætir við að ef þátt­taka í aðgerðum sé góð og fólk passi upp á smit­varn­ir, þá muni að ná far­aldr­inum nið­ur.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent