Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19, að því er fram kemur á vef spítalsins.
Alls greindust 67 ný innanlandssmit kórónuveirunnar í gær. Af þeim voru 50 í sóttkví við greiningu, eða um 67 prósent. Fjórir eru nú á gjörgæslu og 26 á sjúkrahúsi. 1.206 eru í einangrun og 2.823 í sóttkví. Þetta kemur fram á covid.is í dag.
Alls voru 2.715 sýni úr innanlandsskimun greind í gær. Nýgengi smita, fjöldi smita síðustu 14 daga á hverja hundrað þúsund íbúa, heldur áfram að aukast og hefur aldrei verið jafn mikið – en það er nú 289,1.
Auglýsing
Tvö smit greindust á landamærunum í gær en enn er beðið eftir niðurstöðum úr mótefnamælingum.