Yfirvöld kæra Facebook fyrir brot á samkeppnislögum

Stærsti samfélagsmiðill heimsins liggur nú undir miklum þrýstingi vegna kæru frá samkeppniseftirliti Bandaríkjanna.

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna kærði sam­fé­lags­mið­il­inn Face­book fyrir brot á sam­keppn­is­lögum þar í landi í gær. Eft­ir­litið sagð­ist búast við að mið­ill­inn þyrfti að losa sig við Instagram og WhatsApp. 

Sam­kvæmt frétt frá breska blað­inu Fin­ancial Times sakar sam­keppn­is­eft­ir­litið Face­book um að hafa stundað „sam­keppn­is­hamlandi við­skipta­hætti um ára­bil.“ Þessir við­skipta­hættir fælu meðal ann­ars í sér yfir­tökur á öðrum fyr­ir­tækjum sem ógn­uðu mark­aðs­ráð­andi stöðu mið­ils­ins og tak­mörkun á þjón­ustu sem gæti nýst öðrum keppi­naut­um.

Eft­ir­litið nefnir sér­stak­lega sam­fé­lags­miðl­ana Instagram og WhatsApp, sem fyr­ir­tækið keypti árin 2012 og 2014, en sam­kvæmt Fin­ancial Times búast yfir­völd við því að málið endi á því að Face­book losi sig við báða miðl­ana. 

Auglýsing

Betra að kaupa en að kepp­ast við

Í kærunni er end­ur­tekið vísað í tölvu­pósta­sam­skipti Mark Zucker­berg, for­stjóra Face­book, við sam­starfs­menn sína. Í einum þeirra sagði hann að það væri „betra að kaupa heldur en að kepp­ast við“ önnur fyr­ir­tæki, en í öðru við­ur­kenndi hann að sam­skipta­for­ritið WhatsApp væri betra en sam­skipta­hluti Face­book, Messen­ger, og að það væri ómögu­legt að draga úr því for­skot­i. 

Einnig er vísað í aðra tölvu­pósta starfs­manna Face­book eftir stuttu eftir kaupin á WhatsApp, þar sem yfir­tök­unni á „hugs­an­lega eina fyr­ir­tæk­inu sem hefði getað orðið næsta Face­book á far­síma“ var fagn­að. 

Mis­nota stöðu til að krefj­ast upp­lýs­inga

Sam­kvæmt sam­keppn­is­eft­ir­liti Banda­ríkj­anna hefur mark­aðs­ráð­andi staða Face­book komið illa niður á not­endum þess, jafn­vel þótt þeir þurfi ekki að borga fyrir þjón­ust­una. Öllu heldur hefði mið­ill­inn notað stöðu sína til að krefj­ast þess að not­endur hans gæfu frá sér fleiri per­sónu­upp­lýs­ingar en þeir hefði ann­ars gert ef meiri sam­keppni væri á milli sam­fé­lags­miðla.

Bæði kaupin sam­þykkt á sínum tíma

Face­book sendi frá sér til­kynn­ingu stuttu eftir að ákæran var gerð opin­ber, en í henni sak­ar  yfir­lög­fræð­ingur fyr­ir­tæk­is­ins, Jenni­fer New­stead, yfir­völd um að ganga gegn eigin ákvörð­un­um, þar sem bæði kaupin gegn Instagram og Whatsapp voru sam­þykkt á sínum tíma.

New­stead segir að vin­sældir beggja for­rit­anna væru Face­book að þakka. „Þegar Face­book keypti Instagram var heild­ar­fjöldi not­enda þess ein­ungis tvö pró­sent af því sem hann er í dag, með ein­ungis 13 starfs­menn, engar tekjur og í raun­inni enga eigin inn­við­i,“ bætti hún við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent