Alls sóttu 60 manns um embætti forsetaritara sem nýverið var auglýst til umsóknar. Örnólfur Thorsson, sem starfað hefur hjá forsetaembættinu frá árinu 1999 og verið forsetaritari frá árinu 2005, greindi frá því seint á síðasta ári að hann myndi hverfa til annarra starfa. Hann lýkur störfum 1. mars næstkomandi en verður nýjum forsetaritara innan handar til 1. ágúst.
Þegar starfið var auglýst kom fram að forsetaritari stýri embætti forseta Íslands undir yfirstjórn forseta. Felur það meðal annars í sér stjórn fjármála, mannauðs og daglegum störfum á skrifstofu forseta og Bessastöðum. Þá annast forsetaritari samskipti við Alþingi, ráðuneyti, fjölmiðla og sendiherra erlendra ríkja.
Eftirtalin sóttu um embætti forsetaritara:
- Agnar Kofoed-Hansen ráðgjafi
- Andrés Pétursson, stjórnandi Nordplus
- Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra
- Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður samskipta
- Auður Ólína Svavarsdóttir deildarstjóri
- Ásgeir Sigfússon framkvæmdastjóri
- Ásgeir B. Torfason rekstrarhagfræðingur
- Ásta Sól Kristjánsdóttir umsjónarmaður
- Ásta Magnúsdóttir lögfræðingur
- Bergdís Ellertsdóttir sendiherra
- Birgir Hrafn Búason yfirlögfræðingur
- Birna Lárusdóttir upplýsingafulltrúi
- Björg Erlingsdóttir sveitarstjóri
- Dagfinnur Sveinbjörnsson stjórnmálahagfræðingur
- Davíð Stefánsson stjórnsýslufræðingur
- Davíð Freyr Þórunnarson menningarstjóri
- Finnur Þ. Gunnþórsson hagfræðingur
- Gísli Ólafsson tæknistjóri
- Gísli Tryggvason lögmaður
- Glúmur Baldvinsson leiðsögumaður
- Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, starfandi yfirmaður samvinnusviðs mannréttindastofnana Evrópuráðsins
- Guðjón Rúnarsson lögmaður
- Guðný Káradóttir verkefnastjóri
- Guðrún Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri
- Guðrún E. Sigurðardóttir menntaskólakennari
- Gunnar Þór Pétursson prófessor
- Gunnar Þorri Þorleifsson kennari
- Hanna Guðfinna Benediktsdóttir framkvæmdastjóri
- Hans F. H. Guðmundsson fulltrúi
- Hildur Hörn Daðadóttir framkvæmdastjóri
- Hreinn Pálsson sendifulltrúi
- Ingibjörg Ólafsdóttir framkvæmdastjóri
- Jóhann Benediktsson markaðsstjóri
- Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir deildarstjóri
- Jörundur Kristjánsson forstöðumaður
- Kristján Guy Burgess stjórnmálafræðingur
- Lilja Sigrún Sigmarsdóttir viðskiptastjóri
- Magnús K. Hannesson sendifulltrúi
- Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
- Margrét Hauksdóttir forstjóri
- Matthías Ólafsson markaðsstjóri
- Monika Waleszczynska viðskiptastjóri
- Nína Björk Jónsdóttir sendifulltrúi
- Pétur G. Thorsteinsson varaprótókollstjóri
- Rósa Guðrún Erlingsdóttir sérfræðingur
- Salvör Sigríður Jónsdóttir móttökuritari
- Sif Gunnarsdóttir skrifstofustjóri
- Sigríður Helga Sverrisdóttir kennari
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir framkvæmdastjóri
- Sigurður Nordal, hagfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands
- Sigurjón Sigurjónsson verkefnastjóri
- Sigurjóna Sverrisdóttir framkvæmdastjóri
- Sólveig Kr. Bergmann samskiptastjóri
- Stefán Vilbergsson verkefnisstjóri
- Steinar Almarsson leiðsögumaður
- Urður Gunnarsdóttir stjórnmálafræðingur
- Valdimar Björnsson fjármálastjóri
- Þorgeir Pálsson sveitarstjóri
- Þorvaldur Víðisson biskupsritari
- Þóra Ingólfsdóttir forstöðumaður