ESA boðar samningsbrotamál út af íslensku leigubílalöggjöfinni

Þrátt fyrir að frumvarp um breytingar á lögum liggi fyrir Alþingi sendi Eftirlitsstofnun EFTA íslenskum stjórnvöldum bréf í dag og boðar að mögulega verði farið í mál út af núgildandi lögum, sem brjóti gegn EES-samningnum.

ESA hefur verið með augun á íslensku leigubílalöggjöfinni allt frá árinu 2017.
ESA hefur verið með augun á íslensku leigubílalöggjöfinni allt frá árinu 2017.
Auglýsing

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) sendi í dag bréf á íslensk stjórn­völd, þar sem fram kemur að lög­gjöfin um leigu­bif­reiðar á Íslandi, sem fela í sér ákveð­inn hámarks­fjölda útgef­inna starfs­leyfa, fari gegn ákvæði EES-­samn­ings­ins um að fólk hafi rétt til að hefja og stunda atvinnu­starf­semi.

Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu á vef ESA. Íslenskum stjórn­völdum eru gefnir tveir mán­uðir til þess að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi og í kjöl­farið mun stofn­unin ákveða hvort hún fari lengra með mál­ið. 

Sig­urður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra lagði fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um leigu­bíla í októ­ber. Það er enn til með­ferðar í umhverf­is- og sam­göngu­nefnd þings­ins. 

Auglýsing

Álit ESA er það að leyfis­kerfið á Íslandi eins og það er í dag hafi hamlandi áhrif á nýliðun á leigu­bíla­mark­aði. Skil­yrðin sem þurfi að upp­fylla til að fá leyfi séu ekki hlut­læg, heldur séu þeim sem hafi verið til staðar á mark­aðnum í hag. 

Þetta hafa íslensk stjórn­völd í reynd við­ur­kennt að stand­ist að öllum lík­indum ekki 31. gr. EES-­samn­ings­ins og frum­varpið sem lagt var fram í októ­ber var til þess gert að mæta fyrri aðfinnsl­um. Hefur Sig­urður Ingi sam­göngu­ráð­herra meðal ann­ars sagt það ætlað til þess að tryggja að Ísland stand­ist þjóð­rétt­ar­legar skuld­bind­ingar sín­ar.

Núgild­andi lög um leigu­bif­reiðar tóku gildi árið 2001, en unnið hefur verið að end­ur­skoðun þeirra á und­an­förnum árum. 

Athuga­semdir ESA voru til­efni þess að ráð­ist var í vinnu við að end­ur­skoða lög­in, en í jan­úar 2017 til­­kynnti stofn­unin íslenskum stjórn­­völdum að hún hefði hafið frum­­kvæð­is­at­hugun á leig­u­bif­­reiða­­mark­aðnum á Íslandi og mög­u­­legum hindr­­unum á aðgengi að hon­­um.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent