Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar fyrir Suðvesturkjördæmi, segist langa að halda áfram þingmennsku. „Mér fyndist gaman að vera með í því liði sem myndi fjölga þingsætum okkar og gera jafnaðarmenn aftur að því afli í kjördæminu sem vera ber.“
Frá þessu greinir þingmaðurinn í stöðuuppfærslu á Facebook í dag. Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar greindi frá því í gær að hún sæktist eftir því að leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum.
Guðmundur Andri rekur atburðarásina þegar hann var beðinn um að leiða lista Samfylkingarinnar í þingkosningunum 2017. Þá hafi staðan verið þannig að Samfylkingin átti engan þingmann í kjördæminu. „Með samstilltu átaki hjá góðri áhöfn í skemmtilegri kosningabaráttu tókst okkur að endurheimta þingsætið – og munaði grátlega litlu að Margrét Tryggvadóttir næði að komast inn líka.
Síðan hafa árin þotið áfram, hver dagur boðið upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni og ég hef smám saman náð tökum á þessu starfi. Það er mikil vegsemd að vera þingmaður, að vera trúað fyrir því að sitja á löggjafarsamkomunni og starfa þar við lagasetningu og málflutning í anda og umboði þúsunda fólks sem aðhyllist sömu lífsviðhorf og maður sjálfur. Ég tel að jafnaðarstefnan sé mikilvægari en nokkru sinni því að hún ein hefur úrræði til að vinna gegn vaxandi misskiptingu og lotugræðgi kaptítalismans um leið og gagnkvæmt umburðarlyndi og virðing fyrir einstaklingunum og vali þeirra er innbyggð í þessa stefnu,“ skrifar hann.
Mun una niðurstöðu uppstillingarnefndar
Guðmundur Andri segir að honum finnist hann hafa erindi í pólitík og í þingflokki jafnaðarmanna. „Fyrir utan það að vera talsmaður hugsjóna og stefnumála lít ég á það sem hlutverk mitt að stuðla að sáttum og góðu andrúmslofti og held að ég hafi lagt mitt af mörkum til þess að þingflokkur Samfylkingarinnar hefur verið á þessu kjörtímabili býsna öflugur og málefnalegur. Og mig langar að halda áfram. Mér fyndist gaman að vera með í því liði sem myndi fjölga þingsætum okkar og gera jafnaðarmenn aftur að því afli í kjördæminu sem vera ber.
Þessu ræður uppstillingarnefndin. Hún er skipuð valinkunnu og góðu fólki úr kjördæminu og ég veit að þau komast að góðri niðurstöðu fyrir kjördæmið og flokkinn. Og hvernig sem niðurstaðan verður mun ég una henni og halda áfram að leggja mitt af mörkum,“ skrifar þingmaðurinn að lokum.