„Mig langar að halda áfram“

Guðmundur Andri Thorsson ætlar að bjóða fram krafta sína fyrir Samfylkinguna fyrir næstu kosningar.

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Guð­mundur Andri Thors­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir Suð­vest­­ur­­kjör­­dæmi, seg­ist langa að halda áfram þing­mennsku. „Mér fynd­ist gaman að vera með í því liði sem myndi fjölga þing­sætum okkar og gera jafn­að­ar­menn aftur að því afli í kjör­dæm­inu sem vera ber.“

Frá þessu greinir þing­mað­ur­inn í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag. Rósa Björk Brynj­­ólfs­dóttir þing­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­innar greindi frá því í gær að hún sæk­t­ist eftir því að leiða lista flokks­ins í Suð­vest­­ur­­kjör­­dæmi í kom­andi alþing­is­­kosn­­ing­­um.

Guð­mundur Andri rekur atburða­rás­ina þegar hann var beð­inn um að leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í þing­kosn­ing­unum 2017. Þá hafi staðan verið þannig að Sam­fylk­ingin átti engan þing­mann í kjör­dæm­inu. „Með sam­stilltu átaki hjá góðri áhöfn í skemmti­legri kosn­inga­bar­áttu tókst okkur að end­ur­heimta þing­sætið – og mun­aði grát­lega litlu að Mar­grét Tryggva­dóttir næði að kom­ast inn líka.

Síðan hafa árin þotið áfram, hver dagur boðið upp á fjöl­breytt og krefj­andi verk­efni og ég hef smám saman náð tökum á þessu starfi. Það er mikil veg­semd að vera þing­mað­ur, að vera trúað fyrir því að sitja á lög­gjaf­ar­sam­kom­unni og starfa þar við laga­setn­ingu og mál­flutn­ing í anda og umboði þús­unda fólks sem aðhyllist sömu lífs­við­horf og maður sjálf­ur. Ég tel að jafn­að­ar­stefnan sé mik­il­væg­ari en nokkru sinni því að hún ein hefur úrræði til að vinna gegn vax­andi mis­skipt­ingu og lotu­græðgi kap­títal­ism­ans um leið og gagn­kvæmt umburð­ar­lyndi og virð­ing fyrir ein­stak­ling­unum og vali þeirra er inn­byggð í þessa stefn­u,“ skrifar hann.

Auglýsing

Mun una nið­ur­stöð­u ­upp­still­ing­ar­nefndar

Guð­mundur Andri segir að honum finn­ist hann hafa erindi í póli­tík og í þing­flokki jafn­að­ar­manna. „Fyrir utan það að vera tals­maður hug­sjóna og stefnu­mála lít ég á það sem hlut­verk mitt að stuðla að sáttum og góðu and­rúms­lofti og held að ég hafi lagt mitt af mörkum til þess að þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar hefur verið á þessu kjör­tíma­bili býsna öfl­ugur og mál­efna­leg­ur. Og mig langar að halda áfram. Mér fynd­ist gaman að vera með í því liði sem myndi fjölga þing­sætum okkar og gera jafn­að­ar­menn aftur að því afli í kjör­dæm­inu sem vera ber.

Þessu ræður upp­still­ing­ar­nefnd­in. Hún er skipuð val­in­kunnu og góðu fólki úr kjör­dæm­inu og ég veit að þau kom­ast að góðri nið­ur­stöðu fyrir kjör­dæmið og flokk­inn. Og hvernig sem nið­ur­staðan verður mun ég una henni og halda áfram að leggja mitt af mörk­um,“ skrifar þing­mað­ur­inn að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent