Síminn ætlar að breyta fjármagnsskipan sinni með því að dótturfélagið Míla verður látið ganga frá eigin fjármögnun frá Íslandsbanka og móðurfélagið sjálft er að ganga frá endurfjármögnun frá Arion banka. Við þessar breytingar, og söluna á Sensa til Crayon Group í byrjun desember síðastliðins, sem skilaði Símanum söluhagnaði upp á 1,7 milljarða króna, losnar um fjármuni sem félagið telur að nýtist sér ekki í daglegum rekstri.
Í fjárfestakynningu vegna uppgjörs Símans fyrir árið 2020 kemur fram að hluta þeirra fjármuna verði komið til hluthafa og til stendur að leggja tillögu fyrir aðalfund um að færa niður eigið fé Símans um átta milljarða króna. Til viðbótar á að greiða arð upp á hálfan milljarð króna vegna frammistöðu síðasta árs. Hluthafar Símans munu því fá 8,5 milljarða króna greidda út úr félaginu í ár. Samhliða mun eiginfjárhlutfall félagsins lækka úr 57,2 í um 44 prósent.
Í fyrra stóð yfir undirbúningur á breyttri verkaskiptingu milli Símans og dótturfélagsins Mílu, sem heldur utan um fjarskiptainnviði félagsins. Sú breytta verkaskipting tók gildi í byrjun þessa árs. Á meðal þess sem fólst í breytingunni var að Míla tók yfir netrekstur sem áður var innan vébanda Símans.
Stoðir stærsti hluthafinn
Stærsti einstaki hluthafi Símans er fjárfestingafélagið Stoðir, sem á 14,86 prósent hlut í félaginu. Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða, er einnig stjórnarformaður Símans. Miðað við núverandi eignarhlut geta Stoðir vænst að fá tæplega 1,3 milljarða króna út úr Símanum í ár. Aðrir helstu eigendur Símans eru íslenskir lífeyrissjóðir.
Stoðir eru líka stærsti innlendi einkafjárfestirinn í Arion banka, þess sem nú endurfjármagnar skuldir Símans, en þar hefur verið rekin sú stefna að reyna að greiða sem mest eigið fé út úr bankanum undanfarin ár. Á næstu árum er stefnt að því að greiða um 50 milljarða króna til hluthafa bankans. Á þessu ári munu arðgreiðslur verða þrír milljarðar króna og endurkaup á eigin bréfum 15 milljarðar króna. Hlutdeild Stoða í þeirri útgreiðslu er um 900 milljónir króna.
Tekjur jukust í erfiðu árferði
Tekjur Símans jukust um 868 milljónir króna í fyrra þrátt fyrir það sem stjórnendur félagsins lýsa í kynningu að hafi verið „erfitt árferði“ vegna kórónuveirufaraldursins. Tekjur af sjónvarpsþjónustu jukust mest, alls um 632 milljónir króna.
Þar munaði mest um tekjur af Premium-áskrift Sjónvarps Símans, sem jukust um hálfan milljarð króna, og auknar auglýsingatekjur, sem jukust um tæpar 100 milljónir króna. Flestir samkeppnisaðilar Símans sáu auglýsingatekjur sínar dragast umtalsvert saman vegna heimsfaraldursins. Tekjur af upplýsingatækni jukust líka umtalsvert á milli ára og launakostnaður var lækkaður um 300 milljónir króna milli ára, meðal annars með fækkun stöðugilda um 50.
Á móti lækkuðu tekjur af reikigjöldum, sem ferðamenn greiða að uppistöðu, um 400 milljónir króna í fyrra. Í fjárfestakynningu Símans er sérstaklega tekið fram að félagið hafi ekki nýtt sér nein úrræði sem stjórnvöld buðu upp á vegna kórónuveirufaraldursins, enda ekkert í rekstri félagsins sem virðist hafa kallað á slíka nýtingu.
Hagnaður Símans á árinu 2020 var 2,9 milljarðar króna sem er nánast sami hagnaður og félagið skilaði árinu áður.