Íslandspóstur hagnast um 104 milljónir

Viðsnúningur var í rekstri Íslandspósts á síðasta ári, sem skilaði hagnaði í fyrsta skiptið í þrjú ár. Samkvæmt forstjóra fyrirtækisins létti endurskipulagning og niðurgreiðsla langtímalána umtalsvert á félaginu.

Póstkassi
Auglýsing

Skipu­lags­breyt­ing­ar, þar með talið upp­sögn 120 stöðu­gilda, og nið­ur­greiðsla lang­tíma­lána, létti á rekstri Íslands­pósts, sem skil­aði 104 millj­óna króna hagn­aði í fyrra. Þetta er í fyrsta skiptið sem Íslands­póstur skilar hagn­aði síðan árið 2017, en árið 2019 nam tap fyr­ir­tæk­is­ins 551 milljón króna. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Ís­lands­pósts fyrir síð­asta ár.

Minni tekj­ur, enn minni kostn­aður

Sam­kvæmt árs­reikn­ingnum minnk­uðu tekjur fyr­ir­tæk­is­ins á milli ára, og námu 7,5 millj­örðum krónum í fyrra, miðað við 7,8 millj­arða króna árið 2019. Hins vegar minnk­aði rekstr­ar­kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins enn meira, eða úr 7,5 millj­örðum í 6,8 millj­arða króna, á sama tíma. 

Þar vógu þyngst laun og launa­tengd gjöld, sem lækk­uðu um 437 millj­ónir á árinu. Þessi sam­dráttur náð­ist með fækkun stöðu­gilda hjá fyr­ir­tæk­inu, en í lok síð­asta árs voru þau 601, miðað við 721 í árs­lok 2019. 

Auglýsing

Hagn­aður Íslands­pósts í fyrra er svip­aður að stærð og hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins árið 2016. Hann var þó ekki jafn­stór og árið 2017, þegar hann nam rúmum 200 millj­ónum króna. 

Líkt og Kjarn­inn hefur greint frá lét Birgir Jóns­son af störfum sem for­stjóri Íslands­pósts í nóv­em­ber í fyrra. Birgir, sem starfað hafði hjá fyr­ir­tæk­inu frá júní­mán­uði árið 2019, tjáði sig um brott­hvarf sitt á Lin­ked­In-­síðu sinni, en þar sagði hann stærstu rekstr­ar­mál Íslands­póst hafa verið leyst og að hann fyndi sig ekki í stöðu sinni þegar póli­tísk­ari sjón­ar­mið væru farin að skipta meira máli. 

Nýr for­stjóri félags­ins er Þór­hildur Ólöf Helga­dótt­ir. Í frétta­til­kynn­ingu frá Íslands­pósti sagði hún að rekstr­ar­ár­ang­ur­inn væri alls ekki sjálf­gef­inn. „Ár­angur sem þessi er alls ekki sjálf­gef­inn, end­ur­skipu­lagn­ing og ­nið­ur­greiðsla lang­tíma­lána hefur létt umtals­vert á félag­inu og okkur tókst með sam­stilltu átaki ­stjórnar og starfs­fólks að bregð­ast við tekju­minnkun vegna minni inn- og útflutn­ings. Íslands­póstur er á réttri leið," bætti hún við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent