216 félög á almannaheillaskrá Skattsins – Tæplega 80 umsóknir bíða samþykktar

Tæplega 300 félög hafa sótt um að komast á almannaheillaskrá Skattsins frá því að opnað var fyrir skráningu í nóvember. Félög á almannaheillaskrá eiga rétt á frádrætti á skattskyldum tekjum vegna gjafa og framlaga, allt að 350 þúsund krónum á ári.

Félög sem á almannaheillaskrá Skattsins hafa rétt á frádrætti frá skattskyldum tekjum vegna gjafa og framlaga, allt að 350 þúsund krónum á ári.
Félög sem á almannaheillaskrá Skattsins hafa rétt á frádrætti frá skattskyldum tekjum vegna gjafa og framlaga, allt að 350 þúsund krónum á ári.
Auglýsing

Hvað eiga Skák­deild Breiða­bliks, ADHD sam­tök­in, Sam­band íslenskra kristni­boðs­fé­laga, Raf­í­þrótta­deild Kefla­víkur og Sam­tökin '78 sam­eig­in­legt? Jú, allt eru þetta félög sem eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins og hafa því rétt á frá­drætti frá skatt­skyldum tekjum vegna gjafa og fram­laga, allt að 350 þús­und krónum á ári.

Með lög­­um um félög til almanna­heilla sem sam­þykkt voru á Alþingi á síð­asta ári var heim­il­aður frá­­­drátt­ur frá skatt­­skyld­um tekj­um vegna gjafa og fram­laga til lög­að­ila sem upp­­­fylla til­­­tek­in skil­yrði og eru í al­­manna­heilla­­skrá. Frá­drátt­ur­inn get­ur numið sam­tals 350 þús­und krón­um á alm­an­aks­ári. Tæp­lega 300 félög hafa skilað inn umsókn á almanna­heilla­skrá Skatts­ins. 216 félög hafa verið sam­þykkt frá því að opnað var fyrir skrán­ingu í lok síð­asta árs og að minnsta kosti 77 umsóknir til við­bótar bíða sam­þykkt­ar.

Auglýsing

Við frum­skrán­ingu 1. nóv­em­ber í fyrra voru umsóknir 208 lög­að­ila sam­þykkt­ar. Átta umsóknir til við­bótar hafa verið sam­þykktar og að minnsta kosti 77 umsóknir bíða sam­þykktar sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skatt­in­um.

Kjarn­inn hefur frá því í des­em­ber óskað eftir upp­lýs­ingum um þær umsóknir sem enn eru í sam­þykkt­ar­ferli en aðeins fengið upp­lýs­ingar um fjölda þeirra, tæp­lega 80 tals­ins, en ekki frá hvers konar félögum umsókn­irnar eru. Umsóknir sem borist hafa eftir ára­mót hafa ekki verið afgreiddar en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skatt­inum munu sam­þykktar umsóknir sem ber­ast frá 1. jan­úar 2022 fá gild­is­dag­setn­ingu sama dag og umsókn berst.

„Merki­leg þátta­skil í þróun sam­taka sem vinna að almanna­heill“

Lög­að­ilum sem upp­fylla til­tekin skil­yrði er heim­ilt að sækja um skrán­ingu á almanna­heilla­skrá Skatts­ins. Almennt er um að ræða óhagn­að­ar­drifin félög sem í meg­in­dráttum reka ekki atvinnu­starf­semi í skiln­ingi skatta­laga, heldur fyrst og fremst starf­semi með þjóð­fé­lags­legan til­gang og sam­fé­lags­leg mark­mið að leið­ar­ljósi. Meðal félaga sem hlotið hafa sam­þykki á almanna­heilla­skrá eru trú­fé­lög, söfn­uð­ir, íþrótta­fé­lög, björg­un­ar­sveitir og ýmis hjálp­ar­sam­tök og styrkt­ar­fé­lög. .

Almanna­heill, regn­hlíf­ar­sam­tök frjálsra félaga­sam­taka og sér­eigna­stofn­ana í almanna­þágu, sögðu í til­kynn­ingu í nóv­em­ber þegar lögin voru sam­þykkt að um væri að ræða „merki­leg þátta­skil í þróun sam­taka sem vinna að almanna­heill á Ísland­i“. Von­ast sam­tökin að lögin muni hafa áhrif til góðs á starf­semi almanna­heilla­sam­taka.

Meðal þeirra skil­yrða sem lög­að­ilar þurfa að upp­fylla til þess að gjafir eða fram­lög til þeirra skapi frá­drátt­ar­rétt hjá gef­anda er að um sé að ræða mann­úð­ar- og líkn­ar­starf­semi, æsku­lýðs- og menn­ing­ar­mála­starf­semi, starf­semi björg­un­ar­sveita, vís­inda­lega rann­sókn­ar­starf­semi, starf­semi sjálf­stæðra háskóla­sjóða og ann­arra mennta­sjóða, neyt­enda- og for­varna­starf­semi, starf­semi þjóð­kirkj­unn­ar, þjóð­kirkju­safn­aða og ann­arra skráðra trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga. Mót­tak­andi gjafar eða fram­lags þarf að vera skráður í almanna­heilla­skrá þegar gjöf er afhent eða fram­lag veitt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent