Verðmæti afla upp úr sjó nam tæpum 16,2 milljörðum í febrúar, 41,7% hærra en í febrúar 2014, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Vegur þar þyngst aflaverðmæti loðnu sem nam tæpum 6 milljörðum og jókst um um 4 milljarða samanborið við febrúar 2014. Aflaverðmæti þorskaflans nam 6,2 milljörðum í febrúar sem er ríflega 24 prósent aukning miðað við sama mánuð 2014.
Aflaverðmæti á tólf mánaða tímabili frá mars 2014 til febrúar 2014 nam 142,6 milljörðum og er nánast óbreytt miðað við tólk mánaða tímabil árið áður. Á tímabilinu hefur vermæti botnfisk- og uppsjávarafla aukist en á móti hefur aflaverðmæti flatfisks og skel- og krabbadýra dregist saman.
Mikill uppgangur hefur verið í sjávarútvegi undanfarin misseri enda eru mörg stærstu fyrirtækin að skila metafkomu þessa dagana. HB Grandi hagnaðist um rúma tvo milljarða á fyrstu þremur mánuðum ársins og var EBITDA framlegð 40,1 prósent.