Áformin einkennist af „einhvers konar firringu“

Zephyr Iceland, sem áformar vindorkuver í Hvalfirði, „forðast að snerta á kjarna málsins“ í matsáætlun á framkvæmdinni. Kjarninn er sá að mati Skúla Mogensen, eiganda sjóbaðanna í Hvammsvík, að áformin einkennast af „einhvers konar firringu“.

Skúli Mogensen hefur byggt upp mikla ferðaþjónustu í Hvammsvík i Hvalfirði.
Skúli Mogensen hefur byggt upp mikla ferðaþjónustu í Hvammsvík i Hvalfirði.
Auglýsing

Ef vind­orku­ver Zephyr Iceland verður reist á Brekku­kambi í Hval­fjarð­ar­sveit mun það gjör­breyta útsýni gesta sjó­baða Skúla Mog­en­sen í Hvamms­vík. Hann er væg­ast sagt ósáttur við áform­in. Í umsögn sem lög­maður sendir fyrir hans hönd segir að mats­á­ætlun Zephyr um fram­kvæmd­ina sé haldin „stór­kost­legum ann­mörk­um“. Í henni sé farið vítt og breitt yfir ýmis atriði sem varða áformað vind­orku­ver en „forð­ast að snerta á kjarna máls­ins“. Hann er sá að mati Skúla að áformin ein­kenn­ist af „ein­hvers konar firr­ing­u“.

Þeta megi ráða t.d. af því að ætl­unin sé að byggja orku­verið á 647 metra háu fjalli, að hver vind­mylla verði svo um 250 metrar á hæð sem sam­svarar 3,3 Hall­gríms­kirkju­turn­um. Þær munu því teygja sig í um 900 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. „Ætl­unin er að gera þetta rétt hjá höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í námunda við helstu úti­vist­ar­svæði borg­ar­búa og öll þau helstu svæði sem ferða­menn leita helst til.“

Auglýsing

Umhverf­is­mat Zephyr Iceland á vind­orku­veri í landi bæj­ar­ins Brekku í Hval­fjarð­ar­sveit hófst í sumar með kynn­ingu á mats­á­ætlun sem aug­lýst var á vef Skipu­lags­stofn­un­ar. Verið myndi telja 8-12 vind­myll­ur, verða 50 MW að afli, og vegna hæðar sinnar yfir sjáv­ar­máli blasa við víða að – allt frá sveit­inni sem það yrði byggt í upp á Lang­jökul og Skjald­breið.

Tugir íbúa og sum­ar­húsa­eig­enda í nágrenn­inu sendu inn athuga­semdir um mats­á­ætl­un­ina og gagn­rýna þeir allir fyr­ir­ætl­anir Zephyr harð­lega líkt og Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um. Verið er aðeins eitt af mörgum sem fyr­ir­tækið áformar á Íslandi. Zephyr Iceland er í meiri­hluta eigu norska fyr­ir­tæk­is­ins Zephyr AS.

Lög­maður Skúla segir hann hafa fjár­fest veru­lega í vist­vænni ferða­þjón­ustu í Hvamms­vík og að hann yrði „óþyrmi­lega fyrir barð­inu á því ef þessi áform myndu raun­ger­ast“. Til­vist vers­ins myndi orka sem „stór­kost­legur hem­ill“ á fjár­fest­ingu í ferða­þjón­ustu í Hval­firði og víðar enda myndi sjást til vind­myll­anna frá Húsa­felli, lengst innan úr Norð­ur­ár­dal, frá Langjökli, Þór­isjökli, frá Skjald­breið, frá Gjá­stykki við Þing­velli og ofan af Mos­fells­heiði.

„Í þessu myndi fel­ast ómældur skaði, langt umfram ávinn­ing af fram­kvæmd­um, sem fram­kvæmda­að­ilar virð­ast ekki leggja raun­hæft mat á með nokkrum hætt­i,“ segir í umsögn­inni.

Þá séu ótalin ýmis önnur umhverf­is­á­hrif sem hljót­ast myndu af vind­orku­ver­inu. Þekkt sé að vist­kerfi og víð­erni lands­ins eru mun við­kvæm­ari fyrir hvers kyns raski eftir því sem leitað er hærra yfir sjáv­ar­mál. „Sætir sam­kvæmt þessu furðu að engir aðrir val­kostir séu teknir til skoð­unar en sá sem kynntur er og hann bor­inn saman við svo­nefndan „núll­kost“.“ Fjöl­margir aðrir val­kostir hljóti að vera til staðar en að byggja vind­orku­ver á toppi Brekku­kambs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent