Alls 34 prósent vilja sjá Dag áfram sem borgarstjóra – 16 prósent nefna Hildi

Þeim fjölgar milli kannana sem vilja sjá núverandi borgarstjóra áfram í embættinu, en fækkar sem vilja sjá oddvita stærsta minnihlutaflokksins taka við því.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Auglýsing

Flestir Reyk­vík­ingar sem taka afstöðu til þess hver eigi að vera næsti borg­ar­stjóri nefnd Dag B. Egg­erts­son, núver­andi borg­ar­stjóra og odd­vita Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Alls telja 34 pró­sent að hann eigi áfram að sitja í emb­ætt­in­u. 

Þetta kemur fram í könnun Pró­sents fyrir Frétta­blaðið sem gerð var 5. til 9. maí en nið­ur­stöður hennar voru birtar í dag. Það er hærra hlut­fall en nefndi Dag í könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem birt var 28. apr­íl, en þá naut Dagur stuðn­ings 30 pró­sent aðspurðra í borg­ar­stjóra­stól­inn. 

Dagur nýtur mest stuðn­ings í mið­borg­inni, þar sem 59 pró­sent aðspurðra vilja hann áfram sem borg­ar­stjóra, en hann leiðir í flestum hverfum borg­ar­inn­ar. Frá­vikin eru að Kol­brún Bald­urs­dótt­ir, odd­viti Flokks fólks­ins, leiðir í Breið­holt­inu með 25 pró­senta fylgi og Hildur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks, í Graf­ar­vogi með 24 pró­sent. Fleiri vilja sjá Dag sem borg­ar­stjóra en ætla sér að kjósa Sam­fylk­ing­una.

Auglýsing
Færri nefna Hildi þó heilt yfir sem æski­legan næsta borg­ar­stjóra nú en í lok apr­íl. Þá sögðu 19 pró­sent að þeir vilji fá hana í emb­ættið en nú nefna 16 pró­sent Hildi. Það er svipað hlut­fall og vill sjá Einar Þor­steins­son, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem borg­ar­stjóra en hann nýtur stuðn­ings 15 pró­sent aðspurðra sem taka afstöðu. Aðrir sem mæl­ast með yfir tíu pró­sent stuðn­ing í starf borg­ar­stjóra eru Dóra Björt Guð­jóns­dótt­ir, odd­viti Pírata (ell­efu pró­sent), og Sanna Magda­lena Mörtu­döttir (tíu pró­sent). 

Könn­unin var net­könnun gerð 5. til 9. maí. Úr­­tak var 1.750 ein­stak­lingar og svar­hlut­­fallið 50,4 pró­sent.

Meiri­hlut­inn bætir við sig sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá

Sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans og Dr. Bald­urs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings heldur meiri­hlut­inn í Reykja­vík velli og Sam­fylk­ingin verður stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík á ný eftir kosn­ing­arnar sem fara fram næst­kom­andi laug­ar­dag. Fylgi hennar mælist 24,8 pró­sent sem myndi skila sex borg­ar­full­trú­um.

P­íratar mæl­ast með 16,3 pró­sent fylgi sem myndi skila þeim fjórum borg­ar­full­trú­um. Við­reisn fengi 7,4 pró­sent fylgi og héldi sínum tveimur full­trúum og Vinstri græn 6,1 pró­sent, sem skilar Líf Magneu­dótt­ur, odd­vita flokks­ins, að óbreyttu einni í borg­ar­stjórn. Meiri­hlut­inn virð­ist því, sam­kvæmt gerðum könn­un­um, ætla að bæta við sig fylgi frá kosn­ing­unum 2018 og fá 13 borg­ar­full­trúa, sem er einum fleiri en hann fékk í síð­ustu kosn­ing­um.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem fékk 30,8 pró­sent atkvæða fyrir fjórum árum, stefnir í afhroð en fylgi hans mælist 18,8 pró­sent. Það myndi skila fimm borg­ar­full­trúum í stað þeirra átta sem flokk­ur­inn hefur í dag. Verði þetta nið­ur­staðan mun Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá sína verstu nið­ur­stöðu í höf­uð­borg­inni í sögu flokks­ins. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sá flokkur sem bætir mestu við sig. Hann mælist með 12,4 pró­sent fylgi og næði inn þremur borg­ar­full­trúum að óbreyttu, en flokk­ur­inn hefur engan sem stend­ur. Sós­í­alista­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins myndu halda sitt­hvorum borg­ar­full­trú­anum sín­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent