Arion banki og PCC hafa slitið formlegum viðræðum um möguleg kaup PCC á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Samhliða hefur Arion banki sagt upp raforkusamningi við Landsvirkjun þar sem framleiðsla kísils var forsenda samningsins. Frá þessu segir Arion banki í fréttatilkynningu í dag.
„Því er allt útlit fyrir að kísilverksmiðjan í Helguvík verði ekki gangsett á ný og að hún verði flutt eða henni fært nýtt hlutverk,“ segir í tilkynningu bankans. Þar er haft eftir Benedikt Gíslasyni bankastjóra að saga kísilversins í Helguvík sé vel þekkt, en bankinn telji nú fullreynt að þar verði rekið kísilver.
Bankinn eignaðist verksmiðjuna árið 2018 í kjölfar gjaldþrots fyrri eiganda, United Sílicon hf. Stakksberg ehf., dótturfélag Arion banka hefur á undanförnum misserum gert tilraunir til að finna kaupendur að verksmiðjunni, en þær tilraunir hafa nú runnið út í sandinn.
Samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu Arion banka gerðist það í kjölfar þess að PCC kynnti áform sín fyrir hagaðilum, en niðurstaða þeirrar vinnu var að PCC teldi ekki grundvöll fyrir áframhaldandi viðræðum um kaup félagsins á verksmiðjunni.
„Bankinn telur fullreynt að þarna verði rekin kísilverksmiðja“
Í tilkynningu bankans er haft eftir Benedikt að bankinn hafi litið á það sem skyldu sína að „reyna til þrautar að nýta þá innviði og þau verðmæti sem þarna hefur verið fjárfest í“.
„Þar höfum við horft til allra hagaðila, ekki síst íbúa Reykjanesbæjar sem urðu fyrir óþægindum á þeim stutta tíma sem verksmiðjan var starfrækt. Við unnum metnaðarfulla endurbótaáætlun á verksmiðjunni sem fór í gegnum umhverfismat og leituðum að rekstraraðila með nauðsynlega þekkingu og getu til að starfrækja verksmiðjuna á umhverfisvænan máta, í sátt við samfélagið. Bankinn telur fullreynt að þarna verði rekin kísilverksmiðja og því tekur við nýr kafli sem miðar að því að flytja verksmiðjuna eða færa henni nýtt hlutverk,“ er haft eftir Benedikt.
Viðræður komnar í gang við nokkra aðila
„Í kjölfar þessarar niðurstöðu mun Arion banki horfa til sölu á þeim innviðum sem eru til staðar í Helguvík, annað hvort til flutnings eða með það að markmiði að koma þar upp annars konar starfsemi en kísilframleiðslu,“ segir í tilkynningunni frá Arion banka.
Þar segir jafnframt frá því að viðræður séu „þegar í gangi við nokkra aðila, innlenda og erlenda, í þessu sambandi“.
Þess er getið að ákvörðunin hafi ekki áhrif á bókfært verðmat eignarinnar, en það verði svo endurmetið með hliðsjón af þróun þeirra viðræðna sem standa yfir.