Ánægja með áramótaskaupið ekki mælst minni síðan 2014

Kjósendum Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Sósíalistaflokks fannst skaupið minnst fyndið en kjósendur Vinstri grænna, Samfylkingar og Pírata hlógu mest. Ánægja með skaupið hrundi milli ára úr 85 í 45 prósent.

Screenshot 2022-02-03 at 08.56.05.png
Auglýsing

Alls sögð­ust 45 pró­sent lands­manna vera ánægðir með ára­mótaskaup Rík­is­út­varps­ins vegna árs­ins 2021 sem sýnt var að venju á gamlárs­kvöld, sam­kvæmt könnun Mask­ín­u. 

Það er mik­ill sam­dráttur á ánægju með skaupið frá fyrra ári en ára­mótaskaupið 2020 mæld­ist það besta í ára­tug og sögð­ust 85 pró­sent aðspurðra þá að þeim hefði fund­ist það gott. Ánægja með ára­mótaskaupið hefur ekki mælst minni frá árinu 2014 og ein­ungis tvisvar síðan árið 2011. Á árunum 2015 til 2020 sögð­ust á bil­inu 62 til  85 pró­sent hafa verið ánægð með skaup­ið. 

Munur á afstöðu eftir stjórn­mála­skoð­unum

Mark­tækur munur er á afstöðu fólks til skaups­ins eftir stjórn­mála­skoð­un­um. Kjós­endum Sós­í­alista­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins voru lík­leg­astir til að finn­ast það ekki gott og kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins voru ekki langt und­an. Kjós­endur Við­reisnar og Flokks fólks­ins voru við með­a­tal þegar kom að afstöðu til gæða skaups­ins. 

Auglýsing
Það virð­ist hins vegar hafa ríkt almennt meiri ánægja með skaupið frá miðju til vinstri í íslenskum stjórn­málum þar sem kjós­endur Vinstri grænna hlógu allra mest af upp­gjöri árs­ins 2021. Alls sögð­ust yfir 60 pró­sent þeirra hafa verið ánægðir með ára­mótaskaup­ið. Kjós­endur Sam­fylk­ingar og Pírata voru ekki langt undan þegar kom að því að finn­ast skaupið gott. 

Konur hlógu meira en karlar

Þá virð­ist skaupið hafa náð betur til þeirra sem eru með hæstu launin en þeirra sem þiggja þau lægstu. Hjá efsta tekju­hópn­um, þeim sem eru með 1,2 millj­ónir krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur eða meira, sagð­ist um helm­ingur að þeim hafi þótt ára­mótaskaupið gott en hjá lægstu tekju­hóp­un­um, þeim sem eru með minna en 400 þús­und krónur eða á milli 400 og 549 þús­und krónur í mán­að­ar­tekj­ur, mæld­ist ánægjan um og rétt yfir 40 pró­sent. 

Þá jókst ánægjan með skaupið sam­hliða auk­inni menntun aðspurðra. Hjá þeim sem lokið hafa fram­halds­námi í háskóla mæld­ist ánægjan með ára­mótaskaupið tæp 58 pró­sent en hjá þeim sem hafa lokið mest grunn­skóla­prófi mæld­ist hún 40 pró­sent. Þá fannst konum skaupið mark­tækt fyndn­ara en körl­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent