Arion banki býður 18 til 21 prósent til sölu í Símanum í almennu útboði

S--minn_02.jpg
Auglýsing

Stjórn Sím­ans hf. hefur ákveðið að óska eftir því við Nas­daq Iceland að hluta­bréf félags­ins verði tekin til við­skipta á Aðal­mark­aði. Sím­inn væntir þess að við­skipti geti haf­ist 15. októ­ber næst­kom­andi, að því er segir í til­kynn­ingu frá Sím­anum og Arion banka.

Arion banki býður 18-21% til sölu í almennu útboði



Áður en kemur að skrán­ingu Sím­ans mun fara fram almennt útboð á hluta­bréfum í félag­inu dag­ana 5. til 7. októ­ber þar sem Arion banki hf. býður til sölu 18 til 21 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu. „Miðað við lág­marks­verð útboðs­ins nemur heild­ar­stærð þess 4,7 til 5,5 millj­örðum króna og svarar það til um 26 millj­arða króna mark­aðsvirðis alls hluta­fjár í Sím­an­um,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Tvær til­boðs­bækur verða í boði fyrir fjár­festa. Í til­boðs­bók A verður fjár­festum boðið að skrá sig fyrir kaupum að and­virði á bil­inu frá 100 þús­und krónum og upp í 10 millj­ónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verð­bil­inu 2,7 til 3,1 króna á hlut en eitt end­an­legt útboðs­gengi í til­boðs­bók A verður ákvarðað af selj­anda í lok útboðs, að því er segir í til­kynn­ing­unni. Í til­boðs­bók B verður tekið við áskriftum að and­virði yfir 10 millj­ónum króna. „Þar verður lág­marks­verð 2,7 krónur á hlut og ekk­ert hámarks­verð til­greint af selj­anda en eitt end­an­legt útboðs­gengi í til­boðs­bók B verður ákvarðað af selj­anda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðs­gengi í til­boðs­bók A,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans, fagnar áfang­anum og segir Sím­ann vera í góðri stöðu til að stíga þetta skref „Sím­inn er með traustar rætur í íslensku sam­fé­lagi og sterka stöðu á þeim mörk­uðum sem fyr­ir­tækið starfar á. Skrán­ing félags­ins í kaup­höll er mik­il­vægt skref fyrir félag­ið, starfs­fólk og hlut­hafa. Við teljum að félagið sé vel í stakk búið til skrán­ingar og und­ir­búið fyrir þær áskor­anir og aðhald sem skrán­ingu fylg­ir.”

Hösk­uldur H. Ólafs­son, banka­stjóri Arion banka, segir að skrán­ing Sím­ans sé í sam­ræmi við þá stefnu bank­ans að stuðla að skrán­ingu félaga á markað og koma þannig beint að upp­bygg­ingu hluta­bréfa­mark­að­ar­ins, en hann hrundi nær alveg til grunn þegar bank­arnir féllu, haustið 2008. „­Arion banki hefur lagt ríka áherslu á upp­bygg­ingu hluta­bréfa­mark­að­ar­ins hér á landi með því að stuðla að skrán­ingu nýrra félaga í kaup­höll­ina. Það er því ánægju­legt að á fjórum árum hefur Arion banki haft umsjón með skrán­ingu sjö félaga. Sím­inn er þriðja félagið sem við fleytum á markað í ár með almennu útboði í aðdrag­anda skrán­ing­ar. Það hefur verið ánægju­legt að vinna með Sím­anum að und­ir­bún­ingi þess­ara tíma­móta, því þarna er á ferð­inni mik­il­vægt og öfl­ugt félag á sviði fjar­skipta og tækni, með mikla sögu og sterkt vöru­merki. Sím­inn verður góð við­bót við íslenska hluta­bréfa­mark­að­inn.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None