Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað Ásdísi Höllu Bragadóttur í embætti ráðuneytisstjóra í háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu í dag.
Ásdís Halla hefur verið viðloðandi ráðuneytið undanfarna mánuði, en í byrjun desember var hún ráðin verkefnisstjóri við undirbúning ráðuneytisins, sem varð til með lögum um áramót. Síðan var hún sett tímabundið sem ráðuneytisstjóri til þriggja mánaða frá 1. febrúar, en þá ráðstöfun sagði umboðsmaður Alþingis reyndar ekki í samræmi við lög, í áliti sem kom út 4. mars.
Umsóknarfrestur um embættið rann út 28. febrúar, en alls sóttust 8 manns eftir embættinu. Á meðal annarra umsækjenda um embættið var Sigríður Auður Arnardóttir, sem verið hefur ráðuneytisstjóri í umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu undanfarin sjö ár. Aðrir umsækjendur voru Borghildur Einarsdóttir forstjóri, Elmar Hallgríms Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Huld Magnúsdóttir framkvæmdastjóri, Katrín Olga Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri, Ragnhildur Ágústsdóttir sölustjóri og Sigurður Erlingsson viðskiptafræðingur.
Tveir metnir hæfastir af hæfnisnefnd en ráðherra átti lokaorðið
Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að hæfnisnefnd hafi metið tvo umsækjendur hæfasta til þess að gegna embættinu.
„Ráðherra boðaði í framhaldi viðkomandi til viðtals og var það mat ráðherra að Ásdís Halla væri hæfust umsækjenda til að taka við embætti ráðuneytisstjóra. Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, var settur ráðuneytisstjóri til þess að annast skipunarferlið,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Ásdís Halla lauk meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard háskóla árið 2000 og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008. Árið 1990 lauk hún BA námi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.
Hún var meðal annars verið bæjarstjóri í Garðabæ í um 5 ár, forstjóri BYKO, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, átt sæti í háskólaráði Háskólans í Reykjavík, háskólaráði Kennaraháskólans og setið í stjórn NOVA.
„Síðustu ár hefur hún komið að stofnun og rekstri farsælla nýsköpunarfyrirtækja í heilbrigðis- og velferðarþjónustu ásamt því að sinna ritstörfum. Þá hefur Ásdís Halla víðtæka reynslu af stefnumótun og áætlanagerð bæði í störfum sínum hjá hinu opinbera og úr atvinnulífinu. Hún hefur mikla reynslu sem stjórnandi, hefur borið ábyrgð á fjölbreyttum rekstri og stýrt fjölda starfsmanna frá árinu 2000. Ásdís Halla hefur góða og fjölbreytta þekkingu á málaflokkum ráðuneytisins, skýra framtíðarsýn fyrir nýtt ráðuneyti og breytt verklag,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.