Ástandsskýrslur fylgi öllum seldum fasteignum

Nýsamþykkt þingsályktunartillaga felur ráðherra að móta frumvarp um ástandsskýrslur fasteigna. Slíkum skýrslum er ætlað að auka traust í fasteignaviðskiptum en ábyrgð vegna galla sem ekki koma fram í ástandsskýrslum mun falla á matsaðila.

„Þegar mikil eftirspurn er eftir húsnæði getur fyrirvari um ástandsskoðun fasteignar talist kauptilboði til frádráttar,“ segir í greinargerð með þingsályktunartillögunni.
„Þegar mikil eftirspurn er eftir húsnæði getur fyrirvari um ástandsskoðun fasteignar talist kauptilboði til frádráttar,“ segir í greinargerð með þingsályktunartillögunni.
Auglýsing

Ástands­skýrslur munu fylgja öllum seldum fast­eignum í fram­tíð­inni en Alþingi sam­þykkti þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis. Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá þing­flokki Pírata munu slíkar skýrslur inni­halda grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um ástand fast­eignar og verða unnar af óháðu mats­fólki með víð­tæka þekk­ingu á mann­virkja­gerð. „Til þess að stuðla enn frekar að áreið­an­leika, trausti og sátt í fast­eigna­við­skiptum verður fram­kvæmd mats­ins og inni­halds ástands­skýrsln­anna sam­ræmt,“ segir í til­kynn­ingu Pírata en Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður flokks­ins var fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unn­ar.

Nú ber ferða­mála- iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra að und­ir­búa laga­breyt­ingar í sam­ræmi við þings­á­lykt­un­ina sem er í fimm lið­um. Lið­irnir fimm kveða á um hvað eigi að koma fram í lög­un­um. Auk þess sem kveðið verður á um að slíkar skýrslur fylgi sölu­yf­ir­litum fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar og að slíkar skýrslur verði útbúnar af óháðum fag­að­ilum með víð­tæka þekk­ingu á mann­virkja­gerð. Þá munu þeir sem útbúa ástands­skýrsl­urnar vera ábyrgir fyrir göllum sem rýra verð­mæti fast­eigna þegar mis­tök þeirra leiða til bóta­skyldu.

Þá á laga­frum­varpið að stuðla að því að eig­endur fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar að halda við­halds­dag­bók, án þess þó að það verði gert að laga­skyldu. Síð­asti liður þings­á­lykt­un­ar­innar segir að með nýjum lögum verði hægt að ganga frá ein­földum lög­gern­ingum á borð við umboð vegna sölu fast­eign­ar, und­ir­ritun leigu­samn­ings og kaup­samn­ings um fast­eign raf­rænt með notkun þjón­ustu á borð við island.­is.

Auglýsing

Muni auka traust í fast­eigna­við­skiptum

Í grein­ar­gerð sem fylgdi til­lög­unni er það sagt æski­legt að ástands­skýrsla sé meðal sölu­gagna. Slíkar skýrslur séu oft keyptar af til­boðs­gjöfum og kaup­end­um. „Að­gangur þeirra að fast­eign er ekki sá sami og selj­anda sem getur leitt af sér lak­ari skýrslur auk þess sem óskil­virkt er að tveir eða fleiri til­boðs­gjafar láti báðir gera ástands­skýrslu vegna sömu fast­eign­ar. Þá getur mynd­ast hvati við vissar mark­aðs­að­stæður til að láta kyrrt liggja að gera slíkar skýrsl­ur. Sem dæmi má nefna að þegar mikil eft­ir­spurn er eftir hús­næði getur fyr­ir­vari um ástands­skoðun fast­eignar talist kauptil­boði til frá­drátt­ar,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Lagt er til að slíkar ástands­skýrslur skuli gerðar af óháðum fag­að­il­um, líkt og áður seg­ir, og að fram­kvæmd mats­ins skuli fylgja sam­ræmdum mats­að­ferðum auk þess sem inni­hald ástands­skýrslna sé sam­ræmt. „Slíkar gæða­kröfur þykja til þess fallnar að stuðla enn frekar að áreið­an­leika, trausti og sátt í fast­eigna­við­skipt­u­m.“

Líkt og áður segir er ekki lagt til að skylt verði að halda við­halds­dag­bækur en í grein­ar­gerð­inni eru þær sagðar geta haft sam­bæri­legan til­gang og olíu­dag­bækur fyrir bíla. Það að geta flett upp upp­lýs­ingum um við­hald fast­eignar geti aukið til muna skil­virkni í við­haldi á fast­eignum sem og aukið traust á við­skiptum með fast­eignir þar sem haldin hefur verið slík við­halds­dag­bók.

Þá er ein­földun á sam­skiptum milli selj­anda og kaup­anda hús­næðis sem og leigu­sala og leigj­enda sem hægt er að ná fram með staf­rænum lausnum á borð við island.is sögð vera til þess fallin að minnka kostnað við kaup og sölu, auka skil­virkni í við­skipt­um, minnka flækju­stig og auka öryggi neyt­enda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent