Rekstrartekjur Viðreisnar í fyrra voru 72,5 milljónir króna. Nánast öll upphæðin kom úr opinberum sjóðum og mest úr ríkissjóði, eða 54,9 milljónir króna. Þá voru 8,5 milljónir króna framlög frá Alþingi og tæplega 2,8 milljónir króna komu frá sveitarfélögum þar sem Viðreisn á sveitarstjórnarfulltrúa.
Fjárframlög lögaðila námu 1,8 milljón króna og einstaklingar gáfu flokknum 4,8 milljónir króna í fyrra. Einu tveir einstaklingarnir sem gáfu meira en 300 þúsund voru þingmennirnir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem er líka formaður flokksins, og Jón Steindór Valdimarsson, sem missti þingsæti sitt í síðustu kosningum.
Aðrar tekjur flokksins voru félagsgjöld og vörusala upp á 15 þúsund krónur. Sá liður skrapp mikið saman milli ára, en hann skilaði Viðreisn 565 þúsund króna tekjum 2019.
Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Viðreisnar sem skilað var inn til Ríkisendurskoðunar fyrir skemmstu. Flokkurinn var með alls fjóra þingmenn á síðasta kjörtímabili eftir að hafa fengið 6,7 prósent atkvæða í kosningum 2017. Viðreisn bætti við sig 1,6 prósentustigi í síðustu kosningum og einum þingmanni. Því munu framlög til flokksins aukast á þessu kjörtímabili enda segir atkvæðamagnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkissjóði.
Kostnaður jókst um 41 prósent milli ára
Kostnaður við rekstur flokksins jókst um 20,2 milljónir króna milli ára, eða um 41 prósent, Sú hækkun var vegna launa og launatengdra gjalda, sem hækkuðu um 12,7 milljónir króna á síðasta ári, eða um 63 prósent, og annars rekstrarkostnaðar sem jókst um 7,5 milljónir króna, eða 26 prósent.
Hagnaður Viðreisnar í fyrra var 3,5 milljónir króna og dróst mikið saman frá fyrra ári þegar hann var 23,8 milljónir króna. Árið 2018 var hagnaður Viðreisnar 2,3 milljónir króna og því hagnaðist flokkurinn samtals um 29,6 milljónir króna á fyrstu þremur árum kjörtímabilsins.
Eignir Viðreisnar eru nær einvörðungu reiðufé. Flokkurinn átti 25,1 milljón króna í handbært fé og 592 þúsund krónur í útistandandi skammtímakröfum. Flokkurinn er að sama skapi skuldléttur, en skuldir hans voru 4,6 milljónir króna um síðustu áramót. Inni í þeirri tölu voru viðskiptaskuldir, ógreiddur kreditkortareikningur og óuppgerð staðgreiðsla og lífeyrissjóðsgreiðslur.
Framlög til flokka úr ríkissjóði hækkuð gríðarlega
Framlög til stjórnmálaflokka úr ríkissjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjörtímabils. Tillaga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka framlag ríkisins til stjórnmálaflokka á árinu 2018 um 127 prósent var samþykkt í fjárlögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok desember 2017. Framlög til stjórnmálaflokka á því ári áttu að vera 286 milljónir króna en urðu 648 milljónir króna.
Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórnmálaflokkar sem fengu nægjanlegt fylgi í síðustu þingkosningum til að fá úthlutað fjármunum úr ríkissjóði fá samtals 728,2 milljónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.
Um er að ræða þá átta flokka sem eiga fulltrúa á þingi auk Sósíalistaflokks Íslands sem hlaut nægjanlegt fylgi í síðustu kosningum til að hljóta framlag.
Það er sama upphæð og flokkarnir fengu samtals í fyrra og sama upphæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætlanir stjórnvalda ráð fyrir því að hún haldist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórnmálaflokkar landsins alls hafa fengið 3.641 milljónir króna úr ríkissjóði á fimm ára tímabili.
Til viðbótar við þær greiðslur er kostnaður vegna starfsmanna þingflokka greiddur af Alþingi.
Ársreikningar nú birtir í heild
Fulltrúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex formenn stjórnmálaflokka, lögðu svo sameiginlega fram frumvarp til að breyta lögum um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þinglok þess árs.
Á meðal breytinga sem það stuðlaði að var að leyfa stjórnmálaflokkum að taka á móti hærri framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Hámarksframlag var 400 þúsund krónur en var breytt í 550 þúsund krónur.
Auk þess var sú fjárhæð sem einstaklingur þarf að gefa til að vera nafngreindur í ársreikningum viðkomandi flokka eða frambjóðenda sé hækkuð úr 200 þúsund krónum í 300 þúsund krónur.
Þá var ákveðið að láta stjórnmálaflokkanna skila ársreikningum sínum til ríkisendurskoðanda fyrir 1. nóvember ár hvert í stað 1. október líkt og áður var. Sú grundvallarbreyting fylgdi með að Ríkisendurskoðun hætti að birta takmarkaðar upplýsingar úr reikningum flokkanna, svokallaðan útdrátt, og átti þess í stað að birta ársreikninganna í heild sinni áritaða af endurskoðendum.
Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokkarnir þó ekki að sæta því að ársreikningar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri framkvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.
Sem stendur hefur Ríkisendurskoðun ekki birt ársreikninga þriggja flokka; Sjálfstæðisflokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.