Bandarísk kaffihús hafa ekki náð sér af COVID-19 sökum aukinnar heimavinnu

Í kórónuveirufaraldrinum þurftu margir að segja skilið við skrifstofuna og sinna vinnunni heiman frá sér. Bandaríkjamenn vinna enn talsvert heima hjá sér og kaffihús þar vestanhafs hafa þurft að súpa seyðið af þeirri þróun.

Kaffibarþjónn leggur lokahönd á einn rjúkandi heitan cappucino.
Kaffibarþjónn leggur lokahönd á einn rjúkandi heitan cappucino.
Auglýsing

Kaffi­hús í Banda­ríkj­unum finna enn fyrir áhrifum kór­ónu­veirunnar vegna þess hve stór hluti Banda­ríkja­mann kýs enn að sinna hluta af vinnu sinni heima. Sala á kaffi­húsum hrundi í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum en ólíkt mörgum öðrum fyr­ir­tækjum sem selja vörur og þjón­ustu eru kaffi­hús þar í landi enn að glíma við afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Frá þessu er greint í frétt Reuters.

Sam­kvæmt nýrri grein­ingu frá hug­veit­unni Bank of Amer­ica Institute er það ekki síst vegna þess hve hátt hlut­fall vinnu fer enn fram innan veggja heim­il­is­ins. Sam­kvæmt grein­ingu hug­veit­unnar sinntu Banda­ríkja­menn um þriðj­ungi vinnu sinnar frá heim­ilum sínum í júní.

Auglýsing

„Sam­bandið þarna á milli er ein­falt: Fólk á það til að grípa kaffi­bolla á leið sinni til vinnu á morgn­anna eða á öðrum tímum dags­ins ef það er við vinnu á skrif­stof­unni. Ef fólk vinnur heima er eft­ir­spurn þeirra eftir þeim vörum sem fást á kaffi­húsum lík­leg­ast lægri,“ segir í grein­ingu Bank of Amer­ica Institu­te.

Þriðj­ungur kaffis drukkið utan heim­ilis

Eft­ir­spurn eftir kaffi dróst tölu­vert saman í heims­far­aldr­in­um. Það gerð­ist ekki síst vegna lok­ana kaffi­húsa en að minnsta kosti þriðj­ungur af kaffi­drykkju fer fram utan veggja heim­ils­ins, að því er fram kemur í frétt Reuters.

„Þó svo að neyt­endur geti að öllum lík­indum sótt sótt sér kaffi í grennd við heim­ili sín í stað kaff­is­ins sem finna má í grennd skrif­stof­unnar þá eru neyt­endur alla jafna ólík­legri til þess að fara út til þess að ná sér í kaffi ef þeir geta fengið það heima hjá sér,“ segir í skýrsl­unni.

Þar er enn fremur á það bent að heima­vinna, sem hefur að ein­hverju leyti fest sig í sessi eftir heims­far­ald­ur­inn, geti haft langvar­andi áhrif á þjóð­ar­bú­skap­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent