Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra, segist stefna að því að afnema alla tolla, að tollum á matvöru undanskildum, þann 1. janúar 2017. Þetta segir ráðherrann í samtali við Morgunblaðið í dag. Tekjumissir ríkissjóðs af afnámi þessara tolla, auk afnáms tolla á fatnað og skó sem tekur gildi 1. janúar næstkomandi, er sagður í kringum sex milljarðar króna á ári. Ef afnám tolla á fatnað og skó er meðtalið þá nemur tekjumissir fyrir ríkissjóð á bilinu tólf til þrettán milljörðum
Haft er eftir Bjarna að ekki þurfi að grípa til sérstakra mótvægisaðgerða vegna afnáms tolla. Þrátt fyrir þetta séu tekjur ríkissjóðs að vaxa. „Þessar aðgerðir eru hugsaðar til þess að lækka vöruverð, auka gegnsæi í verðmyndun, bæta samkeppnishæfni og auka skilvirkni og nýta þannig betur framleiðsluþættina,“ segir hann. „Það væri verulega mikið framfaraskref að ná að afnema á kjörtímabilinu bæði almennu vörugjöldin og þessa tolla, sem við höfum verið að innheimta undanfarna áratugi.“