Stjórn Festi tilkynnti á fimmtudagskvöld að hún hefði ákveðið að boða hluthafafund „vegna þeirra sjónarmiða sem komið hafa fram í tengslum við starfslok forstjóra félagsins“, Eggerts Þórs Kristóferssonar, sem tilkynnt var um í upphafi mánaðar. Stjórnarkjör mun fara fram á fundinum, sem verður 14. júlí.
Stjórnin segist í yfirlýsingu ekki víkja sér undan málefnalegri gagnrýni, en „telur að horft til framtíðar sé ákvörðun hennar um forstjóraskipti rétt og mikilvægt skref í áframhaldandi þróun félagsins.“
„Vöxtur og viðgangur Festi er mikilvægari en einstaka stjórnendur þess eða stjórn. Það er ósk stjórnar að boðaður hluthafafundur megi verða til þess að sætta ólík sjónarmið svo unnt sé að halda áfram þeirri vegferð sem fyrir höndum er og skipan nýs forstjóra er órjúfanlegur hluti af,“ segir í tilkynningu stjórnarinnar. Þar kemur einnig fram að stjórn og hluthafa beri „sameiginlega ríka ábyrgð á því að skapa starfsfólki frið til að sinna störfum sínum“.
Eitt mál á dagskránni
Í tilkynningu Festi til Kauphallar um fyrirhugaðan hluthafafund segir að á dagskránni verði einungis eitt mál – stjórnarkjör.
„Í upphafi fundarins mun stjórn félagsins segja af sér til að tryggja að stjórnarkjör fari fram. Tilgangur fundarins er að gefa hluthöfum færi á að kjósa nýja stjórn, eftir atvikum að endurnýja umboð sitjandi stjórnar, eða kjósa nýja eða breytta stjórn, allt eftir því hvað hluthöfum sýnist og hverjir gefa kost á sér til stjórnarstarfa,“ segir í tilkynningu Festi.
Fráfarandi stjórn hefur samkvæmt því sem kemur fram í tilkynningu farið fram á það við tilnefningarnefnd félagsins að „hún geri tillögu um fleiri stjórnarmenn en fimm í þetta sinn svo tryggt sé að hluthafar geti kosið á milli frambjóðenda og ekki verði sjálfkjörið“.
Yfirlýsing stjórnar Festi í heild sinni
„Stjórn Festi hefur ákveðið að boða hluthafafund vegna þeirra sjónarmiða sem komið hafa fram í tengslum við starfslok forstjóra félagsins sem tilkynnt voru þann 2. júní sl. Stjórn víkur sér ekki undan málefnalegri gagnrýni en telur að horft til framtíðar sé ákvörðun hennar um forstjóraskipti rétt og mikilvægt skref í áframhaldandi þróun félagsins.
Vöxtur og viðgangur Festi er mikilvægari en einstaka stjórnendur þess eða stjórn. Það er ósk stjórnar að boðaður hluthafafundur megi verða til þess að sætta ólík sjónarmið svo unnt sé að halda áfram þeirri vegferð sem fyrir höndum er og skipan nýs forstjóra er órjúfanlegur hluti af.
Festi er stórt og samfélagslega mikilvægt félag á íslenskum neytenda- og fyrirtækjamarkaði sem hefur margvíslegum skyldum að gegna gagnvart starfsfólki og viðskiptavinum. Félagið býr yfir afburðahópi mjög hæfs starfsfólks sem er spennt fyrir framtíðinni. Stjórn og hluthafar bera sameiginlega ríka ábyrgð á því að skapa starfsfólki frið til að sinna störfum sínum.“