Dagur B. Eggertsson borgarstjóri gagnrýnir fréttaflutning Morgunblaðsins af bensínstöðvarlóð við Ægisíðu harðlega í dag og segir að það sé „mikilvægt fyrir almenning að átta sig á því að það þarf að taka öllum fréttum Morgunblaðsins og framsetningu þeirra með fyrirvara í aðdraganda kosninga.“
Þetta kemur fram í færslu Dags á Facebook, en þar segir hann að frétt Morgunblaðsins í gær um að borgin sé að færa Festi milljarða á Silfurfati með því að láta byggingarrétt á lóðinni við Ægisíðu 102 renna til félagsins hafi byggt á þremur staðhæfingum sem allar hafi verið efnislega rangar.
„Blaðið var beðið um að leiðrétta punktana þrjá – einsog eðlilegir fjölmiðlar gera í takt við viðurkennd vinnubrögð í blaðamennsku, en gerði það ekki heldur sendi að bragði fimm spurningar „til borgarstjóra“. Í morgun birtist blaðið, bæði án leiðréttingarinnar og svaranna sem blaðið kallaði þó eftir. Enda bera svörin með sér að skrif blaðsins voru út úr öllu korti,“ segir Dagur í færslu sinni, þar sem hann birtir einnig spurningar blaðamanns Morgunblaðsins og svör sín við þeim.
Vert er að taka fram að vísað var til hluta svaranna frá borgarstjóra í framhaldsfrétt Morgunblaðsins um þetta mál, sem birtist í blaðinu í dag.
Kjarninn hefur áður fjallað um áform Festi á þessari lóð og fleirum þar sem bensínstöðvar munu víkja í náinni framtíð og einnig óánægju sem íbúar í grenndinni hafa sett fram með það byggingarmagn sem Festi hefur samkvæmt fjárfestakynningum félagins séð fyrir sér á lóðinni.
Framsal byggingarréttar á lóðinni til Festi var hluti af heildarsamningum borgarinnar við olíufélögin um fækkun bensínstöðva, en Festi var með lóðarleigusamning um þessa tilteknu lóð til ársins 2027. Á sumum öðrum stöðum í borginni þar sem bensínstöðvar munu víkja voru leigusamningar um lóðir í gildi langt fram eftir öldinni.
Dagur segir að punktarnir sem voru efnislega rangir í fréttaflutningi Morgunblaðsins hafi verið þær að lóðin „gengi að óbreyttu aftur til borgarinnar“ eftir nokkur ár, að byggja eigi á reitnum fimm hæða hús og að Festi væri að fá tvo milljarða í gjöf.
Borgin hefði þurft að bera kostnað við að fá lóðina til sín
Í svari borgarstjóra til Morgunblaðsins er þessum þremur punktum svarað efnislega. Hann segir það hafa verið borginni í hag að gera þennan samning frekar en að bíða og að í samningum um Ægisíðu 102 hafi verið ákvæði um uppkaup við lok samnings á matsvirði, sem sennilega hefði hlaupið á hundruðum milljóna.
Borgin hefði því ekki einfaldlega fengið lóðina aftur ókeypis í hendurnar eins og sagði í frétt Morgunblaðsins, heldur hefði hún þurft að bera kostnað sem gæti að sögn borgarstjóra verið um 300-400 milljónir miðað við markaðsverð atvinnuhúsnæðis og að við það bætist kostnaður við niðurrif og hreinsun lóðarinnar, sem hefði getað orðið 100-200 milljónir króna að sögn Dags.
„Ljóst er því að samþykkja hefði þurft mikið byggingarmagn til að ná þessum kostnaði til baka. Hagsmunir borgarinnar voru því betur tryggðir með því að ná samningum, fækka bensínstöðvum innan hverfisins og flýta uppbyggingu íbúða og hverfistengdrar þjónustu í hennar stað,“ segir í svari borgarstjóra um þennan punkt.
Minni verðmæti í byggingaréttinum en slegið var fram
Varðandi þann punkt í frétt Morgunblaðsins um að verið sé að færa Festi í hendur byggingarrétt sem geti numið um tveimur milljörðum segir Dagur að þær tölur séu „tómur skáldskapur,“ enda sé enginn hafður fyrir þeim.
„Ef tveim milljörðum er deilt á 50 íbúðir reiknast verðmæti byggingarréttarins á 40 milljónir á hverja íbúð sem er óbyggð og eftir að greiða gatnagerðargjöld og byggingakostnað. Slík verð hafa hvergi sést á Íslandi og eru víðs fjarri veruleikanum. Morgunblaðið verður að vanda sig miklu betur í sínum fréttaflutningi en ekki slá slíku fram. Í málinu liggur fyrir vilji til að þróa byggð á reitnum en engin staðfest byggingaráform liggja fyrir um þessa tilteknu lóð. Í samningnum er kveðið á um uppbyggingu upp á 2-4 hæðir. Það er ljóst að hún þarf að falla vel að þeirri byggð sem fyrir er,“ segir í svari Dags til Morgunblaðsins.
Fimm hæðir og undir lægsti flokkurinn í aðalskipulagi
Varðandi þann punkt í frétt Morgunblaðsins að til standi að byggja allt að fimm hæða hús á lóðinni, en lóðin er í þeim hæðarflokki í nýlega breyttu aðalskipulagi Reykjavíkurborgar, bendir Dagur á það í svari sínu að það sé lægsti hæðarflokkurinn í aðalskipulagi borgarinnar.
„Í Aðalskipulagi Reykjavíkur eru þrír hæðarflokkar. Fimm hæðir og undir, fimm til átta hæðir og níu hæðir og yfir. Eðlilegt í ljósi stöðu þessa reits er að hann færi í neðsta flokkinn, þ.e.a.s. undir fimm hæðum. Það gefur þó ekki fyrirheit um að heimilt sé að byggja fimm hæðir enda hefur alltaf verið rætt um 2-4 hæðir sem kallast á við önnur hús í götunni. Endanlegar hæðir húsa eru ákveðnar í deiliskipulagi,“ segir í svari borgarstjóra.
Morgunblaðið hefur fyrir löngu sýnt að það skeytir hvorki um skömm eða heiður þegar kemur að ritstjórnagreinum og...
Posted by Dagur B. Eggertsson on Friday, January 21, 2022