„Í ár eru 200 börn og ungmenni sem eru á flótta stödd á Íslandi yfir hátíðirnar. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa sótt um vernd á Íslandi.“
Þannig hóf Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata mál sitt undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær.
Hann hélt áfram og sagði að mörg þessara barna væru á bilinu núll til tveggja ára og sum hver ættu ófædd systkini. „Sum þeirra hafa ekki enn fengið úrlausn sinna mála og bíða því í óvissu og óöryggi yfir hátíðirnar á meðan allt lokar. Öðrum hefur verið neitað um vernd og þau bíða þess óttaslegin að vera vísað úr landi og send aftur á flótta á meðan við hin komum saman og njótum hvert annars, gjafa, matar, friðar og öryggis.“
Nú höfum við öll gleymt Alan og öðrum börnum á flótta
Rifjaði Gísli upp að fyrir sex árum hefði heimsbyggðin öll vaknað upp við skelfilega mynd af tveggja ára barni á ströndinni sem hafði drukknað eftir að hafa reynt að flýja til Evrópu.
„Heimsbyggðin grét Alan litla og þjóðarleiðtogar víðs vegar um Evrópu opnuðu hjarta sitt og leyfðu mannúð að ráða för um stund. Nú, sex árum síðar, höfum við öll gleymt Alan og öðrum börnum á flótta. Við höfum látið ósanngjarnar og ómannúðlegar reglur ráða för.
Þess gjalda þau 200 börn sem þegar eru komin til landsins. Nú yfir hátíðirnar njóta þessi börn stuðnings, verkefnis sjálfboðaliða Solaris og velvildar stuðningsaðila þeirra, og veita viðtöku lítilli vetrargjöf sem ætlað er að gleðja hjarta þeirra örlítið yfir hátíðirnar,“ sagði hann.
Hvatti Gísli að lokum Alþingi og Jón Gunnarsson innanríkisráðherra til að fylgja fordæmi Solaris – hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, heiðra minningu Alan Kurdi, sýna alvörukærleika í verki og veita þeim börnum sem hingað eru komin og fjölskyldum þeirra þá jólagjöf að fá tafarlaust hæli hér á landi af mannúðarástæðum.