Dagur ekki búinn að taka ákvörðun um hvort hann verði í framboði

Síðasta könnun sem gerð var á fylgi flokka í Reykjavíkurborg sýndi að allir flokkar sem mynda meirihlutann í borginni myndu bæta við sig fylgi. Flokkur borgarstjóra hefur mælst stærstur en hann er óviss um hvort hann verði í framboði á næsta ári.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, þegar nýr meirihluti í borginni var kynntur árið 2018.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, þegar nýr meirihluti í borginni var kynntur árið 2018.
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í höf­uð­borg­inni, hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann verði í fram­boði í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara á næsta ári. 

Í við­tali við Morg­un­blaðið í dag segir Dagur að hann muni taka þá ákvörðun þegar nær dragi kosn­ing­um. „Ég hef verið borg­ar­stjóri í sjö ár. Að taka við því emb­ætti var í raun alveg nýr starfs­vett­vangur – í svo mörg horn er að líta við stjórn þessa stóra fyr­ir­tækis sem veltir á annað hund­rað millj­örðum króna á ári og starfs­menn­irnir eru meira en tíu þús­und. Þróun borg­ar­innar á hug minn all­an. Borgin er síbreyti­leg í eðli sínu og sömu­leiðis það að vera borg­ar-­stjóri. Það eru mörg stór og jákvæð umbreyt­ing­ar­verk­efni fram und­an. Mikla­braut og Sæbraut fara í stokk og umhverfi þeirra stór­batn­ar. Borg­ar­línan verður að veru­leika og við erum að end­ur­lífga gamla hverfa­kjarna um alla borg. Borg­ar­sam­fé­lagið mót­ast með virkri þátt­töku almenn­ings og Reykja­vík er borg fjöl­breyti­leik­ans og gleð­inn­ar. Slíkt sjáum við vel nú þegar sólin skín og veiran er að baki.“

Sam­fylk­ingin mæld­ist stærst í könnun í mars

Í síð­ustu birtu könnun á fylgi flokka í Reykja­vík­ur­borg, sem Gallup gerði og var birt 4. mars síð­ast­lið­inn, kom fram að Sam­fylk­ingin mæld­ist með mest fylgi allra flokka í borg­inni. Borg­ar­stjórn­ar­flokkur flokks­ins mælist með 26,4 pró­sent fylgi í höf­uð­borg­inni sem er rétt yfir kjör­fylgi hans, en Sam­fylk­ingin fékk 25,9 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018. Það er mun sterk­ari staða en hjá Sam­fylk­ing­unni á lands­vísu þar sem fylgi flokks­ins mælist nú reglu­lega milli 12-13 pró­sent, eða á sömu slóðum og það sem Sam­fylk­ingin fékk í síð­ustu þing­kosn­ing­un­um.

Auglýsing
Sjálfstæðisflokkurinn, sem var stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir síð­ustu kosn­ingar með 30,8 pró­sent fylgi, hefur tapað miklu fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Fylgi hans mæld­ist 25,2 pró­sent í mars eða 5,6 pró­sentu­stigum minna en 2018. 

Allir flokk­arnir fjórir – Sam­fylk­ing, Við­reisn, Píratar og Vinstri græn – sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík undir for­ystu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra hafa bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Píratar hafa bætt við sig 2,8 pró­sentu­stigum og mæld­ust þriðji stærsti flokkur borg­ar­innar í mars með 10,5 pró­sent fylgi. Við­reisn stóð nokkurn veg­inn í stað og mæld­ist með 8,9 pró­sent stuðn­ing. En mesta breyt­ingin voru á fylgi Vinstri grænna, sem biðu afhroð í kosn­ing­unum 2018 og fengu þá aðeins 4,6 pró­sent atkvæða. Fylgi flokks­ins mæld­ist 8,9 pró­sent í mars.

Ef nið­ur­staða könn­unar Gallup yrði það sem kæmi upp úr kjör­köss­unum myndi það þýða að Vinstri græn myndu bæta við sig einum borg­ar­full­trúa á kostnað Sjálf­stæð­is­flokks og þar með styrkja meiri­hlut­ann um einn borg­ar­full­trúa, og fara með hann upp í 13 af 23. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætti sömu­leiðis end­ur­komu í borg­ar­stjórn með einn borg­ar­full­trúa á kostnað Flokks fólks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent