Dagur með bók um „Nýju Reykjavík“ og sviptir hulu af því sem gerðist bakvið tjöldin

Borgarstjóri fer yfir atburðarás síðustu ára í borgarpólitíkinni í bók sem hann hefur skrifað. Þar mun hann einnig greina frá nýjum áformum Reykjavíkurborgar sem liggi loftinu, en eru á fárra vitorði. Búist er við því að hann verði í framboði í vor.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, hefur ritað bók sem kall­ast „Nýja Reykja­vík – umbreyt­ingar í ungri borg“. Hún kemur út í aðdrag­anda jóla.

Greint er frá þessu í Frétta­blað­inu í dag. Þar segir að í bók­inni fjalli Dagur um „þau umskipti sem hann hefur séð á borg­ar­líf­inu á und­an­förnum ára­tugum og munu verða á kom­andi árum.



Sam­hliða því að fjalla um þróun nýju Reykja­víkur rekur hann atburða­rás­ina í borg­arpóli­tík­inni, sem var væg­ast sagt lit­rík og er frá­sögnin mjög per­sónu­leg í þeim köfl­u­m.“

Í frétt blaðs­ins er haft eftir Degi að hul­unni verði svipt af ýmsu „sem gerð­ist á bak við tjöldin sem og metn­að­ar­fullum áformum sem liggja í loft­inu, en eru á fárra vit­orð­i.“

Búist við því að Dagur leiði áfram Sam­fylk­ing­una

Næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í maí á næsta ári. Lang­flestir borg­ar­full­trúar hafa þegar gefið það út að þeir muni sækj­ast eftir end­ur­kjöri en búist er við odd­vitaslag hjá Sjálf­stæð­is­flokkn­um, þar sem Hildur Björns­dóttir og mögu­lega fleiri munu gera atlögu að sæti Eyþórs Arn­alds, sem hann hyggst sækj­ast eftir að nýju. Þar mun fara fram próf­kjör. Góður gangur Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum í Reykja­vík, þar sem flokk­ur­inn fékk 11,5 pró­sent atkvæða í Reykja­vík suður og 12,3 pró­sent í Reykja­vík norð­ur, hafa sett byr í segl þess flokks fyrir kosn­ing­arnar og margir eru að máta sig við að leiða það fram­boð, Fram­sókn beið afhroð í kosn­ing­unum 2018 þegar flokk­ur­inn fékk ein­ungis 3,2 pró­sent atkvæða og engan borg­ar­full­trú­a. 

Auglýsing
Dagur hefur enn ekki gefið út hvort hann ætli að sækj­ast eftir end­ur­kjöri, en heim­ildir Kjarn­ans herma að hann muni gera það. Útgáfa bók­ar­innar sé liður í kosn­inga­bar­áttu hans. Í Frétta­blað­inu er boðað helg­ar­við­tal við Dag sem birt­ist í laug­ar­dags­út­gáfu þess. Vænta má þess að þar verði hann spurður út í áform sín fyrir kom­andi kosn­ing­ar. 

Dagur hefur setið í borg­ar­stjórn lengur en nokkur annar sem þar situr nú, eða frá árinu 2002, fyrst fyrir Reykja­vík­ur­list­ann en síðan fyrir Sam­fylk­ing­una. Hann hefur gegnt emb­ætti borg­ar­stjóra frá árinu 2014 en var áður borg­ar­stjóri í hund­rað daga, frá októ­ber 2007 til jan­úar 2008. Eina skiptið á ferli Dags sem hann hefur setið í minni­hluta er kjör­tíma­bilið 2006 til 2010, að und­an­skildum áður­nefndum 100 dög­um, en miklar svipt­ingar voru í borg­ar­stjórn á þessum árum og alls fjórir meiri­hlutar mynd­að­ir. 

Langt síðan síð­asta könnun var gerð

Langt er síðan könnun var gerð á fylgi flokka í Reykja­vík­ur­borg, sem er næst stærsta stjórn­vald lands­ins. Í síð­­­ustu birtu könnun á fylgi flokka þar, sem Gallup gerði og var birt 4. mars síð­­ast­lið­inn, kom fram að Sam­­fylk­ingin mæld­ist með mest fylgi allra flokka í borg­inni. Borg­­ar­­stjórn­­­ar­­flokkur flokks­ins mæld­ist með 26,4 pró­­sent fylgi í höf­uð­­borg­inni sem er rétt yfir kjör­­fylgi hans, en Sam­­fylk­ingin fékk 25,9 pró­­sent atkvæða í borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­unum 2018. Það er mun sterk­­ari staða en hjá Sam­­fylk­ing­unni á lands­vísu, en hún fékk 9,9 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ing­unum í sept­em­ber og tap­aði fylgi milli kosn­inga. 

­Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­­ur­inn í borg­inni eftir síð­­­ustu kosn­­ingar með 30,8 pró­­sent fylgi, hefur tapað fylgi á kjör­­tíma­bil­inu sam­kvæmt þeirri könn­un. Fylgi hans mæld­ist 25,2 pró­­sent í mars eða 5,6 pró­­sent­u­­stigum minna en 2018. 

Allir flokk­­arnir fjórir – Sam­­fylk­ing, Við­reisn, Píratar og Vinstri græn – sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík undir for­ystu Dags höfðu sam­kvæmt könn­un­inni bætt við sig fylgi á kjör­­tíma­bil­inu. Píratar höfðu bætt við sig 2,8 pró­­sent­u­­stigum og mæld­ust þriðji stærsti flokkur borg­­ar­innar í mars með 10,5 pró­­sent fylgi. Við­reisn stóð nokkurn veg­inn í stað og mæld­ist með 8,9 pró­­sent stuðn­­ing. En mesta breyt­ingin voru á fylgi Vinstri grænna, sem biðu afhroð í kosn­­ing­unum 2018 og fengu þá aðeins 4,6 pró­­sent atkvæða. Fylgi flokks­ins mæld­ist 8,9 pró­­sent í mars.

Ef nið­­ur­­staða könn­unar Gallup yrði það sem kæmi upp úr kjör­köss­unum myndi það þýða að Vinstri græn myndu bæta við sig einum borg­­ar­­full­­trúa á kostnað Sjálf­­stæð­is­­flokks og þar með styrkja meiri­hlut­ann um einn borg­­ar­­full­­trúa, og fara með hann upp í 13 af 23. 

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn ætti söm­u­­leiðis end­­ur­komu í borg­­ar­­stjórn með einn borg­­ar­­full­­trúa á kostnað Flokks fólks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent